Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Page 11

Eimreiðin - 01.01.1895, Page 11
hægt er að fá margfalt betri samgöngufæri fyrir hjer um bil sama verð? Við erum þó, hamingjunni sje lof! loksins komnir svo langt, að það er ekki lengur álitin hrein og bein óhæfa að hugsa um járnbrautagjörð á Islandi. Jæja, nokkuð er nokkuð; þetta er þó stig í áttina, þó lítið sje. Sumir íslendingar hafa látið í ljósi, og jafnvel verið brytt á því í blöðunum, að síðasta alþingi hafi varið allt of miklum tíma til að ræða járnbrauta- og siglingafrumvarp það, er lá fyrir þinginu. Vjer verðum að vera á nokkuð annarri skoðun um það. Þótt það frumvarp verði aldrei að lögum, þá hefur þeim tíma og því fje, sem gengið hefur til þess að ræða það, verið vel varið. Einmitt það kapp, sem kom í umræðurnar, hefur vakið Islendinga almennt til þess að hugsa um málið; og að vekja heila þjóð til að hugsa um það mál, sem hefur meiri þýðingu fyrir hana en nokkurt annað mál, það er ekki lítils virði. Og hvað af öllum þeim málum, sem alþingi á um að fjalla, getur haft rneiri þýðingu en samgöngumálið ? Það er nú almennt viðurkennt, að samgöngurnar sjeu hyrningarsteinninn undir allri velmegun og framförum hverrar þjóðar sem er. Þær eru það fyrsta; allt annað kemur á eptir: atvinnuvegirnir blómgast, fólksfjöldinn og velmegunin eykst, menntir, vísindi og listir taka að dafna og frelsi manna og sjálfstæði vex. Allt þetta er sem ein samanhangandi keðja, þar sem hver hlekkurinn tekur við af öðrum. Sje fyrsti hlekkurinn hrákasmíði, verður öll keðjan eptir því. Og það er enginn vafi á því, að samgöngurnar ber að skoða sem fyrsta hlekk- inn; þær eru undirstaðan, sem fyrst verður að hlynna að og mesta rækt við að leggja, því upp af henni spretta allar aðrar framfarir. Fátæklingurinn, sem jafnan er upp á aðra kominn, getur aldrei orðið fullkomlega sjálfstæður nje frjáls. Vísindi og listir geta aldrei þrifizt hjá mjög snauðri og fámennri þjóð. Fólksfjöldinn og vel- megunin getur ekki aukizt að mörkum nema atvinnuvegirnir sjeu í góðu lagi. Verulegar framfarir í atvinnuvegunum geta ekki átt sjer stað, nema samgöngurnar sjeu góðar og greiðar. Eða með öðrum orðum: skilyrðið fyrir öllum verulegum framförum er aukið auðmagn, peningarnir: »afl þeirra hluta; sem gjöra skal«. En skil- yrðið fyrir því, að auðmagnið geti aukizt 1 landinu, eru miklar og góðar samgöngubætur, því það er dagsanna, sem hinn norski járnbrautafræðingur segir í framanskráðri grein sinni, að sú þjóð,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.