Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 18

Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 18
Hann inn í smiðju til smiðs sjer brá Og seldi honum brotið fyr aura þrjá. Um sölutorg eitt þeir síðan fóru, Þar sá hann að kirsber á boðstólum vóru. Af þeim hann nú keypti svo þar um bil Sem þrír aurar geta hrokkið til, Og honurn sem titt er, með hægð og ró Þau huldi í erminni og vel um bjó. Nú hitt hliðið út um þeir gengu greitt A grundir þar hvergi hús var neitt Og alls ekkert trje rn.eð öllum vegi, En eldheitt skein sólin á heiðríkju degi, Svo fyrir einn vatnsdrykk utan efa Menn allmikið þá hefðu viljað gefa. A undan þeim drottinn gekk ljúfur með ljetta Og lætur óvænt eitt kirsber detta. Þá hljóp til Pjetur og hirti berið, Sem heíði það ljómandi gullepli verið. Það smakkaði undra sætt hans gómi, En siðan aptur vor drottinn í tómi Úr erminni kirsberi öðru fleygði Og eptir þvi Sankti Pjetur sig beygði, Og eptir þeirn berjum, sem ört nú hrundu, Hann opt ljet hann bogra niður að grunduf Svo vel lengi strit það vara náði, Unz viðmóts-blíðastur drottinn tjáði: »Ef hefðirðu í tíma hreyft þig, Pjetur! Þá hefði allt fallið þægar og betur. Hver lítið ei þiggur, nje því vill sinna Opt þola má strit fyrir annað minna.« Stgr. Th.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.