Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 24

Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 24
24 ganga milli íslands og Danmerkur. Tók nú konungur sjálfur að sjer verzlunina (1759). Þótt ijelaginu eigi tækist að ná tilgangi sínum og drepa niður stofnanirnar, tókst því þó i bili með rógburði sínum að vekja mistraust stjórnarinnar á Skúla. Fóru kaupmenn með dylgjur um, að Skúli mundi eigi hafa gert skilvíslegá grein fyrir fje því öllu, er konungur hafði lagt til stofnananna. Leiddi þetta til þess, að stjórnin setti Pahl kaupmann í Reykjavík til að halda skoðunar- gjörð á stofnununum og hafa eptirlit með þeim framvegis, en bauð stjórnendum stofnananna að gera reikningsskil. Af húsum stofnan- anna í Reykjavík voru þessi helzt: Ibúðarhús, dúkvefnaðarhús, Jöj- vefnaðarhús, færasnúningshús, sútunarhús og beykishús með 2 verk- stofum. Af áhöldum telur skoðunargjörð Pahls meðal annars 8 vefi, vagn með aktygjum og plóg. Af skepnum áttu stofnanirnar 20 mjólkurkýr, 3 kálfa, 100 ær, 70 gemlinga, 70 lömb og 36 hesta. 56 manns höfðu atvinnu við þær í Reykjavík. Skúli og fjelagar hans gerðu hin beztu reikningsskil og hreins- uðu sig af öllum sakaráburði. Jeg vil leyfa mjer að tilfæra hjer eptir aðalreikningnum stutt yfirlit yfir tekjur og útgjöld stofnan- anna á árunum 1752—59: Tekj ar Útgjöld Rd. sk. Rd. sk. Dákvefnaðurinn 13,338 26 28,152 61 Töjvefnaðurinn 7,682 51 ii,373 46 Færasnúningurinn 3,559 53 3,057 36 Sútunin 1,289 64 955 86 Brennisteinssuðan 3,242 94 3,479 43 Fiskiduggurnar 22,755 63 41,007 48 Akuryrkjan 5,499 86 Samtals... 51,868 5i 93,526 OÓ Mismunur I 1 41,657 55 Hjer ber þess að gæta, að hús stofnananna, sem hjer eru reikn- uð með og mestmegnis voru af timbri, urðu hluthafendum mjög kostnaðarsöm og ýms áhöld urðu þeir að kaupa dýrum dómutm Þótt klæðavefnaðurinn hossi hjer miklum mun hærra í útgjalda- bálkinum, þá má eigi þar af ráða, að hann hafi gefið minna af sjer

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.