Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Side 26

Eimreiðin - 01.01.1895, Side 26
2 6 stofnananna í stað Skúla, sem var bolað frá. Kom nú tilgangur fjelagsins brátt í ljós, en hann var sá, að upphefja stofnanirnar smátt og smátt. Ljet ijelagið höggva upp eina fiskidugguna í Kaup- mannahöfn, en Ari tók til óspiltra málanna í Reykjavik og rak ástæðulaust megnið af vinnufólkinu burt frá stofnununum svo það ráfaði um vinnulaust og átti við mesta harðrjetti að búa. Af 8 vefurn, er stöðugt höfðu gengið meðan Skúli hafði ráðin, gengu nú aðeins 2—3, og einn vefara rak Ari burt af því honum þótti hann vefa of niikið! Klæðin voru af ásettu ráði gerð of mjó og send út urn hafnir landsins illa þæfð og illa lituð, allt til þess að vekja óvild á stofnununum. Þegar klagað var yfir vefnaðarvörunni sögðu kaupmenn: »Þetta er iðnaður ykkar eigin lands, þarna getið þið sjeð!« Báru þeir það svo fram erlendis, að stofnanirnar væru að engu nýtar og Islendingar sjálfir óánægðir með þær. Skúli bar fyrst um sinn harm sinn í hljóði, en er hann sá hvað verða vildi, fjekk hann eigi lengur orða bundizt og ljet nú ákærurnar afdráttarlaust dynja yfir fjelagið. Um þessar mundir (1771) kom hin svo nefnda »Landkommissíón« til íslands, og var henni falið á hendur að kynna sjer ástand landsins. Skýrði Skúli henni ýtarlega frá málum þessum og bar þungar sakir á fjelagið, en sýndi fram á, hverju stofnanirnar hefðu fengið áorkað. Ljet hann eptir- fylgjandi fjárhagsyfirlit fylgja skýrslu sinni: Hús, áhöld og afurðir stofnananna nema......... 175,194 d. 83 sk. Konungur hefur lagt til þeirra 61,097 d. 42 sk. Hluthafendur hafa lagt til... . 6,640 — 60 — Skuld stofnananna........... 1,276 — 57 — ------------------ 69,014 — 62 — Afurðir stofn. hafa því numið 106,180 d. 21 sk. *Landkommissíónin« skýrði frá hinu bága ástandi stofnananna, er hún kom aptur til Hafnar, en gat þess jafnframt, að hún áliti að þær mættu verða landinu til mikillar blessunar, ef lögð væri rækt við þær framvegis. Leiddi þetta til þess, að stjórnin 1772 eptir beiðni Skúla nefndi til 2 menn að dæma í máli fjelagsins og stofnananna. Fjell dómurinn árið eptir og hljóðaði á þá leið, að fjelagið skyldi gjalda hluthafendum 46260 dali fyrir meðferð þess á stofnununum. Eins og við mátti búast gazt fjelaginu eigi að þessum úrslitum og áfrýjaði dómnum. En áður málið yrði til lykta leitt, varð breyting á verzluninni og tók konungur við enn á ný (1774), en fjelagið

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.