Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 35

Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 35
35 líkt þessu. Það er því opt ekki annara meðfæri en lækna að segja með vissu, hvort sjúklingarnir hafi verulega Íungnatæringu. Lungnatæring dregur stundum til dauða á fáum mánuðum, en optast lifa sjúklingarnir árum saman, stundum tugi ára. Stundum tekst að lækna þá, ef það er byrjað nógu snemma og kjör sjúk- linganna eru þannig, að þeir geti farið vel með sig á allan hátt. Mikill fjöldi þeirra, sem fá veikina, deyr að vísu úr henni, en það er ekkert efamál, að hún getur læknazt og horfið; og svo mundi vera miklu optar en nú er, ef sjúklingarnir sýndu meiri hirðusemi með að leita læknisráða í tíma. Af því veikin er optast hægfara í fyrstu, hættir sjúklingunum til að fresta því, þangað til veikin er orðin svo mögnuð, að það er um seinan. Og þótt þeir leiti læknis, gleyma þeir opt ráðum hans of snemma; þeir hætta að gæta þeira, þegar þeim fer að skána. En þessi veiki er þess eðlis, að hún læknast ekki á fáum vikum eða mánuðum, heldur þarf langan tíma, áður full trygging sje fengin fyrir lækningu. Það getur borið lítið á veikinni um stund, en hún fuðrar opt upp aptur, ef sjúklingarnir fara óvarlega með sig. Aðalatriðið við lækninguna er ekki læknis- lyf, heldur góð næring og allur aðbúnaður. Það er ekki tilgangur minn að kenna mönnum að lækna veikina, heldur að forðast hana. Hitt mundi vera ómögulegt. Hver sem er svo ógæfusamur að - fá veikina, verður að leita læknis, og lækn- irinn verður að leggja á ráðin, löguð eptir ástæðum og atvikum í hvert sinn. Jeg hef tekið það fram, að veikinni valdi lifandi sveppir, sem vaxa og margfaldast í lungum sjúklinganna, en geta ekki tímgazt nema í líkömum manna og dýra. Jeg vona, að menn skilji af þessu, að veikin er ncem, berst frá sjúklingunum og sýkir aðra. Bakteríurnar (sveppirnir) »kvikna« ekki fremur en aðrar lifandi verur, heldur fæðast eða myndast æfinlega hver af annari koll af kolli. Veikin byrjar því að eins aö bakteriur þessar komist inn í lungun, en þær eru komnar af öðrum bakteríum, sem hafa tímgazt í öðrum sjúklingum. Hvernig komast þær frá sjúklingunum og berast til annara? Með hrákunum eða uppganginum. Þær berast með hrák- unum upp úr lungunum, og ef sjúklingarnir hrækja á gólf eða á þann stað, sem hrákinn getur þornað, svo hann verði að ryki og þyrlist upp í loptið, þá geta heilbrigðir andað þeim að sjer og fengið veikina á þann hátt. Með loptinu, sem sjúklingarnir anda frá sjer, sleppa þær ekki á burt, því að þær blandast loptinu því aðeins 3*

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.