Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Qupperneq 69

Eimreiðin - 01.01.1895, Qupperneq 69
69 andvirði þess, er ein hefðarkona ber á sjer af gulli og gimsteinum, nægja til uppeldis meðalheimili á Islandi i mörg herrans ár. En hjer þarf sem sje ekkert til að spara, auðurinn er nógur og sjer lítt högg á vatni, þótt snarað sje út nokkrum þúsundum króna. Auðmönnum eru því nær allir vegir færir á vorum dögum og víðast hvar eru þeir í mestu hávegum hafðir. Fj'rir þúsundum ára síðan reistu Israelsmenn sjer gullkálfa, er þeir tilbáðu, og liggjum vjer þeim á hálsi fyrir það tiltæki. En þegar vel er að gætt, er gulltilbeiðsluöldin enn við lýði. Kaupmenn eru gullkálfar vorra tima og fer enn mörgum manninum líkt og Israelslýð, að honum er gjarnt að falla fram og tilbiðja þá. Eitt er það þó, er á milli skilur, en það er það, að oss birtist enginn Móses, er með helgri vand- lætingu hrindi þessum falsguðum niður af blótstöllunum. Enginn skilji orð min svo, sem auðmenn þessir hafi eigi orðið neitt til að vinna til þess að öðlast auðæfi sín, eða að þeir eigi verð- skuldi virðingu manna. Margir meðal þeirra hafa mátt berjast áfram gegn um andstreymi og óteljandi torfærur, áður þeir næðu að verða auðugir og mikils megandi menn, og eigi hafa þeir l^gt árar í bát og sezt í helgan stein, þótt þvi takmarki væri náð. Ber því eigi að leyna, að það er vezlunarstjettin, er Danmörk á að mörgu leyti að þakka eigi aðeins velmegun sina, heldur og ýms stórvirki í þarfir menningar og framfara. Hafa einstakir auðmenn gefið stórfje til menningar- og fram- fara stofnana. Láta þeir sjer þannig eigi, eins og margur kann að ætla, um það eitt hugað, að safna sem mestu gulli og leggjast á það eins og drekar, heldur gera sjer jafnframt far um, að verja fje sínu og fjöri í þarfir þjóðar sinnar á þann hátt, er að beztum notum má koma. Svo sem hjer að ofan er frá skýrt, er hin glæsilegasta hlið Hafnar- lifsins, þar sem allt er gulli roðið. Birtist hjer stórkaupmaðurinn og verksmiðjueigandinn í 'ailri sinni dýrð meðal jafningja sinna. Þykir oss nú hlýða að snúa að hinni gagnstæðu hlið, ranghverfunni, til saman- burðar og víkur þá sögunni til verkamannsins. Leiðin liggur inn i eitt af hinum myrku og daunillu strætum, er áður er á minnzt. Hús stórbæjanna eru þannig úr garði gerð, að hvert einstakt hús er líkast því, sem fjögur hús sjeu byggð sarnan i ferhyrning með auðu svæði í miðju. Nefnist svæði þetta húsagarður. Verkamenn eiga tíðast hýbýli sin handan yfir garðinn, og má leita þeirra ýmist í kjallaranum, er aldrei sjest sólargeisli, eða i óþjettum kytrum uppi undir þakskeggi og eru þá rið óteljandi upp að ganga. Eru hýbýli hjer ódýr- ust og þó rándýr. Óheilnæmt er lopt alloptast hjá þeim, er i bakhýsum búa, og leggur viða óþef og svækju upp úr garðinum. Á ýmsum stöðum eru fest tengsli úr einum glugga i annan yfir þveran garðinn og á þau hengd föt til þerris. Alltítt er það, að verkamenn með mikilli fjölskyldu hafi eigi nema eitt eða tvö herbergi og liggur þar hyskið allt i kássu. Fátt er hjer um búsgögn og þunnskipað af nauðsynjaáhöldum. Hafi húsfaðir fasta atvinnu og sje reglusamur, er kaup hans alloptast nægilegt til lifsuppeldis; þó verður að halda sparlega á. Gangi vinnan aptur á móti skrykkjótt, er opt sára bágstatt hjá mannrýjum þessurn. Kona og börn verða þá að vetrinum til að hnipra sig saman i einhverju horninu skjálfandi af kulda og máttvana af matarleysi, meðan húsfaðir er uti að leita sjer atvinnu. Rýja vesalingar þessir sig smátt og smátt inn að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.