Eimreiðin - 01.01.1895, Side 78
7§
io. aldar, og ræöur hann það einkum af ýmsum orðum og orðmyndum, sem
koma fyrir í þeim, er hann ætlar að geti ekki átt svo háan aldur. Ynglingatal
heldur hann sje ort um einhvern Rögnvald, er hafi verið norrænn herkonungur
fyrir vestan haf, af Þjóðólfi úr Hvini hinum yngra, er var uppi á io. öld og sagt
er í Skáldatali að hafi kveðið um Strút-Harald jarl. Sonar þessa Þjóðólfs er getið
í Svoldarbardaga og sjálfur var hann sonarsonur Þjóðólfs hins eldra. Álítur B.
að íslenzkir sagnaritarar hafi hjer farið nafna villt og eignað afanurn (Þ. skáldi
Haralds hárfagra) það sem var eptir sonarson hans, af því að báðir báru sama
nafn (Þ. úr Hvini). Eins og við var að búast af öðrum eins ritsnillingi og B. er,
er mikið af lærdómi í þessari bók og margt á henni að græða. En nú er að sjá
hvað dr. Finnur segir, því varla mun hann láta henni ósvarað.
RANNSÓKNIR Á GRÆNLANDI. Það hefur lengi leikið mikill vafi á því,
hvernig húsaskipan hafi verið háttað á íslandi á söguöldinni. Áður álitu menn,
að fornmenn hefðu að eins haft eitt stört íbúðarhús, hinn svo nefnda skdla, þar
sem menn hefðu bæði matreitt, etið og drukkið, setið og sofið o. s. frv. Þéssi
skoðun hafði verið ríkjandi í heila öld eða lengur, þegar dr. Valtýr Guðmunds-
son árið 1889 gaf út bók sína um húsaskipan Islendinga á söguöldinni. En í
henni sýndi hann fram á, að samkvæmt sögunum hefðu nienn á 9. og 10. öld
að minnsta kosti haft 3 innihús eða herbergi, stofu, er menn hefðu setið í, etið
og drukkið í, búr og eldhús, er bæði hefði verið matreiðsluhús og svefnhús. En
á seinni hluta 10. aldar hefðu menn almennt tekið að skilja svefnhúsið frá eld-
húsinu, og hefði hið nýja svefnhús verið kallað skdli.1 Um árið 1000 hefðu því
bæjarhúsin alls staðar verið að minnsta kosti 4. En þótt sögurnar sýndu þetta,
var allt af hægt að segja, að þær kynnu að hafa rangt fyrir sjer í því, því rnjög
hætt væri við, að þær lýstu ffemur þeirri húsaskipan, er tíðkaðist, þegar þær vóru
færðar í letur, heldur en þeirri, sem var almenn, þegar sögurnar fóru fram. Úr
þessu gátu rannsóknir á rústum af býlum fornmanna einar fyllilega skorið. En
hjer var ekki svo hægt um leik, því þær húsaleifar frá fornöldinni, sem kunna
að vera til á íslandi, eru að vonum svo óglöggvar og eyðilagðar, að lítt eða ekki
er á þeim byggjandi. En frá Islandi byggðist Grænland um lok 10. aldar og mátti
því gera ráð fyrir að menn hefðu fylgt sama byggingarlagi þar sem á Islandi.
Nú lagðist byggð íslendinga á Grænlandi allt i einu í eyði og standa því bæja-
rústirnar þar víðast hvar alveg óhaggaðar eins og þær vóru, er byggðin lagðist í
eyði. Með því að rannsaka þessar rústir mátti því búast við að óyggjandi sönnun
fengist fyrir því, hvernig húsaskipun fornmanna hefði verið.
Nú er búið að rannsaka mikinn fjölda af þessum bæjarústum á Grænlandi.
Á síðastliðnu sumri sendu Danir þangað nokkra menn undir forustu liðsforingja
(Premierhjtnant) Daniel Bruun’s, og grófu þeir í tjölda af fommannabýlum og
tóku myndir af þeim. Hefur Bruun, síðan hann kom heirn, bæði haldið fyrirlestra
um rannsóknir sínar (og urn leið sýnt myndir af bæjarústum) og gefið út skýrslu
um þær, sem prentuð er í »Geografisk Tidsskriftn (1894, 13. b., 1.—2. h.). Þar
segir meðal annars svo: »Bæirnir eru alveg eins og hinir forníslenzku bæir, eins og
rannsóknir dr. Valtýs hafa sýnt að þeir hafi verið. Þar eru allar sömu tilbreyting-
arnar sem á Islandi, allt frá hinu elzta byggingarsniði, þar sem bæjarhúsin (stofan,
skdlinn, eldhusiö, búrið o. s. ffv.) standa hvert af enda annars i einni röð, og til
þess bæjarlags, er siðast varð ofan á, þar sem húsunum er skipað í tvær eða þrjár
raðir tveim megin við göng, er liggja í gegn um miðjan bæinn.«
1 Sbr. greinina úr Grdgds hjer að framan (bls. 46), sem virðist stafa frá 10.
öld urn það leyti, er hið nýja svefnhús (skdlinn) var að ryðja sjer til rúms.