Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Side 3

Eimreiðin - 01.01.1899, Side 3
3 fram. Að vísu lásu menn nokkuð rit Hippókratesar og Galenosar við læknaskólann í Salernó, Aristóteles og lítið eitt annað af grískri heimspeki við »Studium Parisiense« (guðfræðingaskólann í París) og aðra guðfræðisháskóla, sem smámsaman risu upp. En menn höfðu ekki frumritin grísku, heldur aðeins lélegar latneskar þýðingar, og voru sumar þeirra gjörðar eftir arabiskum þýðingum. Rómverska lögspeki stunduðu menn og, einkum í Bólogna; en gullaldarritin latnesku hirtu tuenn hvergi um. I bókasöfnum klaustranna iágu hin dýrmætu handrit hulin og hálfeyðilögð aí óhreinindum og myglu. Rifu hinir fáfróðu munkar þau oft í sundur, til þess að rita sálmavers og töfraþulur á sneplana, og seldu síðan sem verndargripi. Þá vaknaði á 13. og einkum á 14. öld nýr andi á Ítalíu. Við krossferðirnar komust menn í viðskifti við Austurlönd, og jukust þau æ síðan; iðnaður og verzlun blómgaðist meir og meir, borg- irnar auðguðust og borgurunum óx sjálfstraust og kjarkur. Við þetta fór mönnum að verða æ meir og meir hugleikið um nátt- úruna og manninn, og menn huriu frá hinni yfirnáttúrlegu heims- skoðun, meinlætingunum og heimshafnaninni, er drepið höfðu í dróma líf miðaldanna, er í raun og veru hafði fjör og æskuþrek að geyma. Það var eins og menn væru að kasta ellibelgnum og ný æskuöld rynni upp hjá þjóðunum. Menn vildu lifa með ög njóta lífsins í ómældum teygum. Menn voru nú líka orðnir leiðir á skólaspekinni, sem hafði gjörtæmt efni sitt, og þess vegna lenti í tómum málkrókum. Þá var það að Petrarca og síðan margir aðrir leiddu í ljós gullaldarhandritin latnesku og grófu þau upp með óþreytandi elju um öll Vesturlönd. Löngu áður en Tyrkir unnu Miklagarð fluttust mörg grísk handrit frá Grikklandi til Italíu, og menn lögðu mikla stund á að læra grísku, eða að snúa hinum grísku ritum á latínu, til þess að fleiri gætu kynst þeim. Menn settu á stofn bókhlöður miklar, einkum Vaticana (páfahöll- ina í Rómaborg) og Laurentiana (lárenzku bókhlöðuna í Flórenz). Þá fanst og prentlistin og kom hún í góðar þarfir til að margfalda hina fornu texta, og greiddi þannig fyrir rannsóknunum. í öllum þessum fornritum fundu menn menjar lífs, er virtist vera svo fagurt og fullkomið, sem mestu aibragðsmenn þeirra tíma gátu kenningar kirkjunnar og hinna fornu heiðnu heimspekinga, einkum Aristótel- esar. ÞÝÐ. 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.