Eimreiðin - 01.01.1899, Blaðsíða 30
3o
5. og 6. bekk séu að eins sumir af piltunum látnir lesa þau. Þeir,
sem ætla sér að leggja fyrir sig fjöllistanám eða annað svipað nám,
séu látnir algerlega sleppa við skáldskapinn. Um laíneska stílinn
segir meirihlutinn, að engin af námsgreinum skólans sé jafnmikil
plága fyrir skólann sem hann, eins og hann sé kendur nú, síðan
menn fóru að heimta fullnaðarpróf í honum upp úr 4. bekk. Hann
hefði með því verið gerður að sjálfstæðu takmarki, sem kenslan
kepti að, en hann ætti í mesta lagi að vera meðal í hendi hennar.
Kensla í latneskum stíl eigi að falla burt í öllum neðri bekkjum
skólans, og að eins að fara fram í tveimur efstu bekkjunum (5.-6.)
sem meðal við hina almennu kenslu í málinu, »ef menn á annað
borð eigi að vera að fást við nokkra kenslu i honum.«
Mikill ertu munur! Norðmenn hafa afnumið alla kenslu
bæði í latínu og grísku. Svíar hafa afnumið alla kenslu í latn-
eskum stíl og langar til að afnema grískukensluna. Kensluráð
Dana ræður til að afnema alla kenslu í griskri tungu og tak-
marka nokkuð kenslu i latínu, og er á því, að latneski stíllinn
mætti vel missa sig. — En hvað segir kenslustjórn Islendinga?
Hún álítur, að grískustaglið í skólanum — þvi um nokkra veru-
lega kunnáttu í tungunni er ekki að ræða — sé ómissandi fyrir
æskulýð þjóðarinnar, og heldur slíku dauðahaldi í þetta hégóma-
tildur, að hún fær konung til þess að neita um staðfesting á lögum
frá alþingi, sem fara fram á að afnema það og setja annað þarfara
í staðinn. Og hvernig er svo afstaða hennar til latneska stilsins?
Hún er sú, að hún lætur sér ekki nægja að heimta hann í fjórum
neðstu bekkjum skólans, heldur svífist rektor ekki við að heimta
hann til inntökuprófs i skólann þvert á móti orðum og anda
reglugjörðarinnar1. Og þegar svo fundið er að þessu athæfi á
alþingi, veigrar landshöfðingi sér ekki við að verja þetta brot á
reglugjörðinni. Og meginþorri þingmanna virðist ekki hafa þrek
til að risa gegn þessu, heldur kyssir í mestu auðmýkt á vöndinn.
Geta þó allir séð, hvílíkan hnekki þessi óréttmæta krafa getur gert
fátækum piltum og vandamönnum þeirra, þegar prestar þeir, sem
kent hafa piltunum undir skóla, hafa slept að æfa þá í latneskum
stíl, af því að hann er ekki heimtaður til inntökuprófs
í reglugjörð skólans. Piltarnir hafa tekist langa og kostnaðar-
1 I dönskum skólum er ekki einu sinni heimtað að piltar kunni eitt orð í
latínu, þegar þeir koma í skólann, hvað þá heldur nokkur stíll.