Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 54

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 54
54 úr garði gerð hjá þinginu, að stjórninni er ómögulegt að staðfesta þau. En hér ber aftur að sama brunninum. ÍM þetta stafar að miklu leyti af undirbúningsleysi málanna, áður en þau koma á þing, og skorti á forustu af stjórnarinnar hálfu á sjálfu þinginu. Sökum ókunnugleika ráðgjafans og hve timi sá, er hann getur varið til mála vorra, er naumur, getur hann aldrei orðið leiðtogi í fram- faramálum vorum. Öll hin þýðingarmestu frumvörp verða því, eins og reynslan sýnir, að öllum jafnaði að koma frá einstökum þingmönnum. Og þegar svo er, má nærri geta, hvernig undir- búningurinn oftast nær er. Þingmennirnir sitja hver á sínu lands- horni og hafa engin tök á að útvega sér þær skýrslur og upplýs- ingar, sem nauðsynlegar eru og stjórnin ein getur útvegað. Undir- búningurinn verður því hjá þeim meira af vilja en mætti. Og þegar á þingið kemur, er heldur ekki hægt að bæta úr þessu, bæði af því að þingtiminn er svo stuttur, að enginn tími er til þess, og af því að hver þingmaður, sem er að nokkru nýtur, er þá svo ofhlaðinn af hinum daglegu þingstörfum, að engin tæki eru á að sinna neinu verulegu utan hjá. Og svo bætist hér við samvinnuleysið millum alþingis og stjórnarinnar á þinginu sjálfu. Þegar um þingmannafrumvörp er að ræða, getur fulltrúi stjórnarinnar, landshöfðingi, sjaldan eða aldrei sagt með nokkurri vissu um það, að hverju stjórnin muni vilja ganga, né hvað hún muni aftaka. Það er sem sé reynsla fyrir þvi, að stjórnin hefir stundum gengið að því, sem lands- höfðingi hefir talið frágangssök, og hins vegar þverneitað sumu, sem landshöfðingi hefir álitið aðgengilegt. Þetta elur upp kergju í þingmönnum og kemur þeim til að taka of litið tillit til orða stjórnarfulltrúans, jafnframt og það veikir ábyrgðartilfinning þings- ins svo tilfinnanlega, að hinn mesti voði er af búinn fyrir sjálf- stæði vora og pólitiskan þroska. En þetta stafar alt af því, að ráðgjafinn ekki mætir sjálfur á þinginu og semur við það, heyrir röksemdir þess og það aftur hans, svo báðir þessir aðilar löggjafarvaldsins geti tekið það tillit hvor til annars, sem vera ber, og eitt getur leitt til affarasæls ár- angurs. Og ekki nóg með það, að ráðgjafinn fær ekki að heyra röksemdir þingsins, heldur getur hann látið sér svo hjartanlega á sama standa, hverjar þær eru, af því þingið hefir ekkert tangarhald á honum og hann þarf aldrei að standa reikningskap ráðsmensku sinnar frammi fyrir því. Hann er aðallega dómsmálaráðgjafi Dana
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.