Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 88

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 88
88 Framfarir náttúruvísindanna á síðustu árum. Náttúrurvísindunum hefur fleygt mjög áfrani á 19. öldinni, sem nú líður að lokum. Framfarirnar byggjast að mestu leyti á hinun frægu uppgötvunum í eðlisfræði og efnafræði, sem þeir Galvani og Volta, Lavoisiér, Priestley og Scheele gjörðu um lok 18. aldar. Þeir hafa með verkum sinum lagt þann grundvöll, er náttúru- vísindi vorrar aldar eru bygð á. En aldrei hefur komið fram til- tölulega jafnmikið af uppgötvunum og nýjungum, sem á siðustu árum, og það lítur út fyrir að náttúrufræðingarnir ætli að enda 19. öldina jafnglæsilega og þá 18. Flestar þessar uppgötvanir eru auðvitað gjörðar á þeim braut- um vísindanna, er áður hafa verið ruddar, og þær eru eðlilegt áframhald af ýmsum eldri uppgötvunum. Tala þessara uppgötvana skiftir þúsundum; margar þeirra hafa þegar fengið eða munu efa- laust fá hina mestu þýðingu, bæði fyrir vísindin og .verklegar framkvæmdir. En það myndi verða oflangt mál að telja þær hér Aftur á móti skal hér minst nokkuð á þær framfarir nattúruvísind- anna á síðustu árum, sem hafa gengið í nýjar stefnur, eða svo að segja rutt vísindunum nýjar brautir. Uppgötvanirnar og rannsóknirnar hafa verið mjög margvíslegar. Landfræðisrannsóknir hafa verið gjörðar því nær um allan heim — bæði í hinum helköldu heimskautalöndum og hinum sólsteiktu miðjarðarlöndum. Sömuleiðis hafa fjöll og firnindi verið könnuð, þar á meðal ekki hvað sizt á Islandi. Líf og lifnaðarhættir dýra og jurta hafa verið rannsakaðir, bæði þeirra, er lifa á mararbotni í hyldýpis höfum undir afarmiklum vatnsþunga og nálega í svarta- myrkir, og þeirra, er lifa uppi á háfjöllum í sterku sólarljósi og undir litlum loftþunga. Með smásjánni (míkróskóp) hafa menn rannsakað heim hinna óendanlega smáu dýra og jurta; menn hafa jaínvel komist svo langt, að þeir hafa rannsakað steinrunna gerla (bakteriur), sem hafa lifað endur fyrir löngu, þegar steinkolin, surtarbrandurinn og mólögin enn þá voru iðgrænir skógar. Menn hafa skoðað himingeiminn gegnum sjónpípur og fundið marga dimma hnetti og smáar stjörnur. Þar á meðal hefur fundist nýtt tungl, sem gengur umhverfis hina stóru og skæru reikistjörnu Júppíter. Aður vissu menn, að Júppíter hafði 4 tungl, og er þetta þá hið fimta; það er lítið og rnjög hraðfara, enda er umferðartími
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.