Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1907, Blaðsíða 19

Eimreiðin - 01.01.1907, Blaðsíða 19
19 eða úreldast. Þegar Milton hafði Kalvíns trúarkerfi í efnisgrind sinna dýrðiegu söguljóða, hefur hann síður en ekki grunað, að hann væri að semja ljóð sín úr sama efni sem »draumar eru ofnir úr«. Og þó stönd- um vér í dag andspænis þeim staðhætti, að engin einasta grein hinnar ákveðnu trúarjátningar kristninnar er óvéfengd látin. Og ekki eru það illir menn, sem þær efa, ekki þeir menn, sem fyrirkoma vilja trúnni og lífsvonum veraldarinnar; ekki heldur heimskingjar, sem ekki vita betur. Það er áreiðanlegt, að það eru einmitt hinir vitrustu og beztu menn í heiminum, sem minst eru trúaðir á flestallar þessar trúargreinar, er áður voru einna fastast ákveðnar. Nokkuð það hefur til borið, á hálfri annarri öld undanfarið, sem búið er þegar að breyta ásýnd veraldarinnar. Veröldin hefur verið rann- sökuð, þjóðirnar hafa náð samgöngum hverjar til annarra, og af því hefur leitt að trúarbrögð þjóðanna hafa mætt hver öðrum andspænis. Vér höfum kynt oss önnur trúarbrögð en vor, vöxt þeirra og afturfarir, og í dag vitum vér, að braut mannkynssögunnar hefur ávalt legið áfram út frá villiskógunum og áleiðis til bústaða englanna, er vér trúum að sé takmarkið. Þessi braut er alla leið stráð deyjandi og aldauða trúar- brögðum, eins og skógargötur á haustin eru stráðar fölnuðu laufi trjánna. Nokkuð annað hefur við borið. Vér höfum framleitt vísindagrein, sem kallast gagnrýni (krítík). Vér höfum rannsakað uppruna og vöxt þessara erfðasagna; vér höfum rannsakað uppruna og vöxt þessara rita; Vér höfum komist að því, að nokkru leyti að minsta kosti, hvernig þessar hugsmíðar þjóðanna verða smámsaman guðdómlegar í hugsun manna og skoðun. Enn annað hefur við borið. Það hafa orðið stórar framfarir í vís- inda uppgötvunum, alt til þess, er fyrri skoðanir og kenningar manna viðvíkjandi veröldinni, og viðvfkjandi manninum, uppruna hans, eðli hans og ákvörðun, nú þykja vitrum mönnum óhafandi. í fyrri daga hugðust menn geta vitað hvað guð hefði verið að hugsa á tímum eilífðarinnar áður en heimurinn var skapaður. Menn vissu upp á hár, hvenær og hvers vegna veröldin var sköpuð. Menn vissu, eða hugðust vita, hvenær og hvers vegna mannkynið »féll«, og að það lá æ síðan í frá upphafi undir bölvan og bræði guðs. Menn vissu, segi ég, eða þóttust vita þessa hluti Nú vitum vér, að ekkert af þessu er satt. Vér lifum nú í nýrri veröldu; hugsanir vorar eru orðnar alt aðrar; vér fáumst við alt aðra drauma, aðrar vonarstjörnur lýsa oss. En sem ályktun af öllum þessum breytingum, sem orðið hafa, langar mig til að ákveða afstöðu tveggja flokka manna gagnvart trúarbrögðun- um. Væri tími til, og þessi staður til þess fallinn, mætti ég lengja þetta mál, en samkvæmt atvikunum læt ég þessa tvo flokka nægja. Margir, og það hámentaðir menn, eru þeirrar skoðunar, að trúin sé að deyja út, og fagna því. Einhver hinn gáfaðasti maður, er ég hefi þekt, sagði oftlega, og þóttist hróðugur af: »Trúin er að deyja, og sið- menningin að koma í hennar stað«. Hann hugsaði, eins og margir aðrir, að trúin fylgdi barnæsku mannkynsins, að hún væri hlutur, er menn yxi frá og síðan væri úr sögunni. En annar flokkur manna er til — þetta göfuga, góða, trúlynda, elskulega kirkjufólk — sem er hrætt um að trúin sé á förum, ætli alveg 2'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.