Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1907, Side 44

Eimreiðin - 01.01.1907, Side 44
44 háttum og hljómmiklu rimi, bæði mál og efni. Rímið varð aðal- atribi, alt annað aukaatriði. Pjóðin gein — og gín enn — við öllum skollanum, ef það var —■ og er — dýrt og slétt. Mörg kvæði núlifandi þjóðskálda vorra eru ekkert nema rím, og það stirt á stundum, málið afleitt og efnið ekkert. Á ég einkum við eldri skáldin, sem eru að jafnaði hroðvirkari en hin yngri. Hér er örstutt sýnishorn eftir »lárviðarskáldið« sjálft, Matthías Joch- umsson: »Fósturlandsins freyja, fagra Vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís!« Hafa menn veitt því eftirtekt, hve þetta þjóðkvæði þjóðskáldsins fer laglega úr hlaði? Hvar eru hugsanirnar, myndirnar, líkingarnar, tilfinningarnar, krafturinn og fjörið í þessum vísuorðum, sem sungin eru í hverju gildi og hljóma á hverri vör? En sú oröahrúga! »Fósturlandsins freyja«, »Vanadís« á undan þrenningunni: »móðir, kona, meyja«! sfat kallið þér« hortitti! Eða þá málið! «Meðtak lof og prís«. Drottinn minn dýri! Fað er ekki á allra færi að raða svo mörgum gimsteinum saman í ekki lengra máli. Pað verður naumast nokkurt kvæði eða erindi almannaeign á íslandi, ef kveðandin er ekki dýr og hljómandi, næstum því hvernig svo sem efnið er. Pað er höfuðskilyrði þess, að ljóð hljóti alþýðuhylli, ef þau eru ekki sungin undir fögrum lögum. En það spillir ekki fyrir, að málið sé íslenzkt, fagurt og lifandi, einkum nú, er Edduhnoðið hverfur smámsaman úr sögunni, sem mál var á. Pað er dautt og litlaust, málar ekkert og lýsir engu. Islendingum er yndi að liprum, látlausum og velkveðnum vísum — þótt þeir séu svo ókostvandir í hina röndina, sem drepið var á. — Má ekki gleyma því, að mörg snotur stakan hefir hrotið ís- lenzkum hagyrðingum og skáldum af munni og lifað í minnum manna. Fær hafa slæðst með öllum soranum, sem minkar óðum, er menning og smekkvísi vaxa. Porsteinn hefir auðkent vísur þessar þannig: xfær eru margar lærðar lítt, leita skamt til fanga; en þær klappa yndisþýtt, eins og börn á vanga«.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.