Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 33

Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 33
33 Og þegar hann sá angistina skína úr augum hennar, hafði hann farið að skellihlæja, rétt eins og skólastrákur. »Hvað haldið þér, námustjórafrú, að Bengt lögmaður hafi hugsað, þegar hann kom heim og heyrði þetta: Ef bróðir minn hefði............Ég býst við, að hann hafi setið heima næsta sinn«. — Tárin komu fram í augun á Onnu Maríu, og Theódór sá það og hló því meira. Pað var eins og hann vildi segja: xþað er dáfallegur talsmaður, sem bróðurson minn hefur valið sér. Éú ert víst búin að gleyma öllum þínum góðu áformum, stúlka mín!« Og í hvert skifti sem henni varð litið á hann, höfðu brúnu augun endurtekið: »Ef bróðir minn hefði látið þetta ógjört, þá hefði ég gjört það sjálfur«. Eiginlega var dúfan litla ekki viss um, að augun hefðu ekki sagt: »bróðursonur«. Og að hugsa til þess, hvernig hún hefði hegðað sér. Hún hafði farið að hágráta, og þotið út úr stofunni. En ekki var það þá, sem »það« kom, og heldur ekki þá um daginn á gönguförinni. Pá var allt annað uppi á teningnum. Tá réði hún sér ekki fyrir kátínu yfir öllu, sem hún sá á þessum fallega búgarði, og yfir að vera umkringd slíkri náttúrufegurð. Éað var líkast því og hún hefði fundið eitthvað, sem hún hefði mist fyrir löngu, löngu. Bakarajómfrú, kaupstaðarstúlka var hún álitin af öllum. En hún var orðin að sveitastúlku í sömu andránni og hún hafði stigið fæti á sandstráða gangstiginn í garðinum. Hún fann að hún átti heima í sveitinni. Éegar henni var orðið hughægra hafði hún hætt sér út upp á eigin spýtur til að skoða búgarðinn. Hún hafði skoðað sig um á sandstráða blettinum fyrir neðan dyraþrepin. Alt í einu hafði hún farið að vingsa handleggjunum, tekið af sér hattinn og fleygt sjalinu. Síðan studdi hún höndunum á mjaðmirnar, dró andann djúpt og blístraði. Henni fanst þetta æði karlmannlegt. Hún hafði reynt að ganga rólega og stillilega um garðinn, en það var ekki eftir hennar skapi. Alt í einu snéri hún við og beygði inn í stóru garðana bakvið húsið, þar sem hlöður, fjós og hesthús voru umhverfis. Hún hafði mætt þar mjaltastúlku og talað fáein orð við hana. Hún hafði orðið hissa á að heyra röddina í sjálfri sér, svo djarfleg var hún. Eins og í herforingja frammi fyrir fylkingu. Og hún fann til þess sjálf, hve rösklega hún leit út, þegar hún gekk inn £ 3

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.