Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 34

Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 34
34 fjósiö, hallaði ofurlítið undir flatt, og vingsaði handleggjunum, með dálitla svipu í annarri hendinni. Par var öðruvísi umhorfs en hún hafði búist við. Par voru engar raðir af ægilegum stórhyrndum kúm; því þær voru allar á beit. Einn einasti kálfur var þar bundinn á bás, og leit út eins og hann vænti sér einhvers af henni. Hún gekk til hans á tánum, hélt saman kjólpilsinu með annarri hendinni og snerti krúnu kálfs- ins með einum fingurgóm á hinni hendinni. Ekki leit út fyrir að kálfinum þætti þetta nóg, því hann rétti út úr sér tunguna og þá leyfði hún honum allra náðarsamlegast að sleikja litlafingurinn. En um leið gat hún ekki að sér gjört að litast um, eins og til að gæta að, hvort enginn væri þar til að dást að slíku þrekvirki. Og þá hafði hún séð, að Theódór stóð í fjósdyrunum og hló að henni. Hann fylgdist með henni úr því. En »það« kom ekki í það sinn, nei, alls ekki í það sinn. Tá skeði einungis það dásamlega undur, að hún var ekki neitt hrædd við Theódór lengur. Tví var eins farið með hann eins og með móður hennar; það leit út fyrir, að honum væri gagnkunnugt um alla hennar smágalla og alla smábresti, er í fari hennar voru, og það var einkar gott. fanst henni. fá þurfti hún ekki að reyna að sýnast betri en hún var. Theódór námueigandi ætlaði að sýna henni blómgarðana og brekkurnar niður að vatninu, en það var ekki að hennar skapi. Hún vildi fá að vita, hvað væri í öllum þessum stóru byggingum. Hann fylgdi henni þá með mestu þolinmæði í mjólkurbúrið og ískjallarann, í vínkjallara og kartöflukjallara. Hann gekk á röðina og sýndi henni matarbúr og brenniskúr, vagnklefann og þvotta- húsið. Svo teymdi hann hana inn í hesthúsin áburðarkláranna og gæðinganna; hann sýndi henni viðarhöggsklefann, vinnukonuher- bergin, aktygjaklefann og vinnumannaherbergin. Tað lá við sjálft, að henni ofbyði allur sá herbergjafjöldi, sem Theódór þurfti með á heimili sínu, en hjarta hennar svall af ánægju, er hún hugleiddi, hvílík unun það mundi vera, að éiga ráð á öllu þessu. Hún fann því ekki til þreytu, enda þótt þau færu bæði í fjárhús og svína- stíu, og litu til hænsnanna og kanínanna. Hún skoðaði rækilega ostabúr, reykingahús og smiðju, og dáðist mjög að öllu, er hún sá. Síðan fóru þau upp á hanabjálkaloftin. Par voru þerriloft fyrir þvott, loft fyrir eldsneyti, heyloft og loft fyrir þurt trjálauf, sem fénu var gefið.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.