Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 75

Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 75
75 Björn B. Jónsson, skynsamleg ádrepa um ríkiskirkju og fríkirkju, um dómgirni og sanngimi, um ritdóma o. fl. Þá kemur »Gildi trúarjátn- inga« eftir séra Jón Bjamason, ákaflega einbeitt og harðorð ritgerð gegn þeim, er hallast að nýju guðfræðinni og biblíu-gagnrýninni, því »fráleitari trúarvillustefna getur naumast hugsast«, segir hann. íÞað er heiðindómur í kirkjulegum dularklæðum« (bls. 22). »Vér höldum því að sjálfsögðu föstu«, segir hann ennfremur, »að biblían i heild sinni er guðinnblásin bók og að vér því þar höfum guðs orð fyrir oss liggjanda« (bls. 23). Úr því háttalagi, að vilja ekki binda sig við neina trúarjátning og heimta algjört kenningafrelsi, getur ekki annað orðið en það, »að þjófsmarkið kemst að innan hjarðar drottins eða í kristinni kirkju« (bls. 25). Enginn stjórnmálaflokkur líður neinum starfsmanni sínum eða erindsreka að halda fram kenningum, sem af- neita meginatriðum flokksstefnunnar eða koma í algjöran bága við eitt- hvert þeirra. »Og sé það gjört í laumi, þá verður sá, er það athæfi leyfir sér, svo framarlega sem upp kemst, nokkurs konar vargur í véum, eða hann fær á sig svartan blett í almenningsálitinu; og það getur jafnvel farið svo, eins og fyrir Efíaltes í sögunni um frelsisbar- áttu Forn-Grikkja gegn Persum, eða Merði Valgarðssyni í fornsögu þjóðar vorrar, eða Júdasi frá Karíot í hinni helgu sögu guðspjallanna, að bletturinn verði aldrei að eilífu af þveginn. Slíkt aðhald frá hálfu almenningsálitsins þurfa kennimenn kirkjunnar að hafa. svo að engir þeirra sjái sér fært af hégómaskap eða einhverri annarri jafn-lúalegri ástæðu að svíkjast undan flokksmerki því, sem þeir sjálfir af frjálsum vilja hafa hátíðlega lofast til að halda uppi og berjast undir 1 drottins nafni. Vitanlega getur reyndar trúarskoðanin breyzt hjá þeim og þeim manni eftir að hann hefir unnið slíkt heitorð, svo að í algjöran bága komi við trúaijátning safnaðar þess, sem hann að undanförnu hefir þjónað. Og er það þá að sjálfsögðu heilög skylda hans að slíta á heiðvirðan hátt samband sitt við þann félagsskap og koma sér fyrir andlega þar í kristninni eða fyrir utan kristnina, sem sannfæring hans segir honum, að hann eigi heima undir nýju merki. Vel líklega hefir þetta ýms óþægindi í för með sér fyrir hlutaðeiganda og jafnvel sárs- auka, en það er eina drengilega aðferðin, og hlýtur hún að verða til góðs fyrir málefni sannleikans, eigi síður en þann mann, er svona hagar ráði sínu« (bls. 28—29). Margar eru þar fleiri kröftugar lík- ingar, kenningafrelsis-klerkunum líkt við raggeit, Hrapp heitinn í Njálu o. s. frv. Yfirleitt er orðbragðið engan veginn prúðmannlegt, né hóg- værðin og umburðarlyndið líkt því, er bezt mundi sæma þjóni Krists hér á jörðu. Og þó getur maður ekki annað en borið virðingu fyrir því sannfæringarafli og þeim eldmóði, sem lýsir sér í ritgerðinni. Manni finst berserksgangurinn hrottalegur og fremur hæfa víkingi en presti; en hins vegar er alt betra en hálfvelgjan, og því verður heldur ekki neitað, að séra Jón hafi rrikið til síns máls og meira að segja alveg rétt fyrir sér, skoðað frá hans sjónarmiði. Annað mál er það, að hann byggir á grundvelli, sem fjöldi nútíðarmanna getur ekki viðurkent: óskeikulleik biblíunnar og gildi úreltra trúaijátninga. En hitt er full- komlega rétt hjá honum, að þeir kennimenn, sem ekki vilja viðurkenna þetta, eiga ekki heima í kirkjufélagi, sem bygt er á þessum grundvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.