Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 37

Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 37
i93 ráðherrarnir í Reykjavík, né erindrekinn í Kaupmannahöfn, því hann segir, að þeir eigi allir að »standa jafnfætis undir jarlin- um^ og hann að velja þá, og helzt ættu þeir að skiftast um að vera erindrekar í Kaupmannahöfn nokkur ár í bili, eftir því sem jarlinn skipi fyrir og honum þyki henta (NF. XXIII, 30—31). Um þetta fyrirkomulag segir Jón Sigurðsson ennfremur: sfetta væri nú öldungis svipað því, sem venjulegt er í hinum ensku nýlendum í stjórnaraðferð þeirra* (NF. XXIII, 30), og benda þau ummæli ótvíræðlega á, að hann hugsi sér jarlinn skipaðan á sama hátt og landstjóra Breta. Pað var og einmitt nýlendu- fyrirkomulag Breta, sem Monrad biskup hafði fyrir augum í til- lögum sínum, en um þær segir Jón Sigurðsson, að þær séu »ein- mitt hið sama, eða mjög svipað því, sem hefir verið sagt í ritum þessum (o: Nýjum Félagsritum), og stungið upp á strax í upp- hafi«. (NF. XXVII, 186). En þó að Jón Sigurðsson þannig hugsaði sér stjórn Islands fyrir komið á svipaðan hátt og í nýlendum Breta, þá vildi hann með engu móti, að Island væri nefnt »nýlenda« (NF. XXVII, 186), enda séu og sum af sjálfstjórnarlöndum Breta, er einmitt hafi mest stjórnfrelsi, t. d. Norðmannaeyjar og Jónisku eyj- arnar, ekki kölluð nýlendur (NF. XXIII, 21). Hann vildi heldur ekki, að stjórn íslands yrði »fullkomin nýlendustjórn«, en það áleit hann, að hún yrði, ef jarlinn ætti að standa undir einhverj- um hinna dönsku ráðherra, og sá hinn sami ætti að vera »milli- göngumaður, þar sem leita þyrfti konungs úrskurðar um nokkurt vort mál, eða þar sem efni lands vors og þess gagn kæmi til greina í hinum almennu ríkismálum« (NF. XXIII, 30). Til þess að koma í veg fyrir þetta, vildi hann, að einn af hinum íslenzku ráðherrum skyldi (til skiftis) jafnan sitja í Kaupmantiahöfn sem erindrekí íslands, »til að sjá um gagn þess, halda uppi svörum í ráðaneyti konungs og vera milligöngumaður í þeim málum, sem ganga á milli konungsins eða stjórnarinnar í Danmörku og land- stjórans (o: jarlsins) á Islandi«. Hantt skyldi og »taka þátt í meðferð þeirra almennu mála, er ísland snerti, í ráði konungs.« Á þetta atriði — og að erindrekinn einmitt ætti sœti í ríkisrdð- inu — lagði Jón Sigurðsson mikla áherzlu, og telur það i>svo mjög mikilsvert, að sé það ýelt úr, verði stjórn Islands full- komin nýlendustjórnx. (NF. XXIII, 31). Bæði þær miklu mætur, sem Jón Sigurðsson hafði á jarlsstjórn-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.