Eimreiðin - 01.01.1913, Síða 25
25
kent; það kostar aðeins 8 kr. Mjólk sú, er barnið á að neyta á
sólarhring, er látin í jafnmarga pela og máltíðirnar eiga að vera
margar, og hún síðan seydd í io mín. í suðukeri því, er áhald-
inu fylgir; að því búnu er pelunum lokað með loftheldum tappa,
er á þeim er, og þeir svo geymdir á köldum stað. Síðan er
hver peli tekinn og gefinn barninu á venjulegum tíma.
Mjólkin er þynt eins og áður er lýst, og sykur látinn í hana
áður en hún er látin á pelana og soðin.
þessi aðferð er hreinlegust og þægilegust, en dýr fyrir fá-
tæklinga; efnaðir menn ættu að fá sér áhaldið og nota það, ef
þörf er á.
9. Parf konan að borða sérstakan mat, ef hún
hefur barn á brjósti?
ÍVí fer fjarri, að svo sé, og má óhætt ráðleggja henni að
borða allan þann mat, sem hana langar í og henni verður ekki
meint af; forðast þarf hún allan munað, tóbak, vín o. s. frv.
I þessari grein hefur verið sýnt fram á, að samkvæmt náttúru-
lögmálinu er það skylda, að konan ali ungbarn sitt á brjósti, ef
hún er heil og ósjúk, að minsta 1. missirið af æfi þess. Skylda
þessi hefur verið illa rækt, ekki síður hér á landi en erlendis, af-
kvæmunum og mannkyninu í heild sinni til heilsutjóns, manntjóns
og efnatjóns.
Ef fleiri foreldrar hér á landi, en nú er reyndin á, vöknuðu
til meðvitundar um hana, sæju hagnaðinn, er af því hlýzt, ef henni
er fylgt fram í verkinu með elju og áhuga, þá er takmarki þess-
arar greinar náð að nokkru leyti, en fyllilega þó eigi fyr en hverju
einasta foreldri er orðin hún sjálfsögð og eiginleg, og afkvæmunum
til eftirbreytni.
Pegar móðurástin gengur þannig í rétta átt, til styrktar og
eflingar afkvæmunum í barátta þeirra fyrir tilverunni, þá má taka
undir með skáldinu, er svo fagurlega kvað:
Móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.