Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1913, Qupperneq 48

Eimreiðin - 01.01.1913, Qupperneq 48
48 Gunnsteinn heitinn byrjaði ekki á ritstörfum fyr en nokkru eftir að hann kvongaðist, enda kvæntist hann ungur, Árið 1894 kemur út fyrsta sagan hans, Elenóra. Og upp frá því rekur hvað annað, ýmist blaðagreinar, sögur eða sönglög. Dálítið fékst hann og við ljóðagjörð, en birti þó ekkert af þvl með nafni. þetta er listi yfir sögur þær og sögubrot, sem ég veit með vissu, að prentað er: 1. Elenóra. (Rvík, 1894). 2. Amerísk gestrisni. (rjóðólfur, 1895?). 3. Hvernig ég yfirbugaði sveitarráðið. (Svafa, II, 1897). 4. Góðar taugar. (Eimreiðin, 1898). 5. Þingkosningin. (Eimreiðin, 1899). 6. í helvíti. (Lögberg, 1899). 7. íslenzk þröngsýni. (Eimreiðin, 1901). 8. Dauðinn. (Almanak Ó. Þorgeirssonar, 1904). 9. Tíund. (Winnipeg, 1905). Þriðja, sjöunda og níunda í röðinni eru allar um Jón á Strympu. Eimta og sjötta eru kaflar úr stórri sögu, sem enn er óprentuð. Fleiri sögur eru, má ég fullyrða, til óprentaðar, ef til vill ekki fullgjörðar. Auk þessa skrifaði hann firna mikið í blöðin, einkum Lögberg. Voru margar þær greinar lista vel skrifaðar, lýstu eldheitum áhuga og glöggskygni á því, er um var að ræða. Var ekki hægt annað en verða snortinn af því fylgi, sannfæringarafli og orðahagleik, enda þótt menn greindi á um málefnið. Fór þar sem oftar, að hann lá ekki á liði sínu. Vílaði hann eigi fyrir sér að ganga berskjaldaður í stjórnmálum, kirkju- málum eða öðru því er á dagskrá var, framan að mótstöðumönnum stnum. En bardagaaðferð hans var jafnan drengileg. Hann skrifaði og nokkra ritdóma um söngfræðis- og sögubækur, og kveinuðu sumir aumlega undan þeim ádrepum. í æsku Gunnsteins voru eigi fremur hljóðfæri en skólar eða önn- ur menningarfæri 1' bygðarlagi hans. Einhversstaðar gróf hann þó upp langspil hjá fornbýlum náunga, og lærði hann að þekkja nótur og tóna með þess tilstyrk. Er hann líklega eini nútíðar íslendingur, sem hafið hefir sönglistabraut sína við þetta úrelta og ófullkomna hljóðfæri. Síð- ar fékk hann sér orgel og lærði að leika á það í frístundum sínum eftir bókum eingöngu. Og lék hann betur á hljóðfæri en margur, sem gjört hefir það að lífsstarfi sínu. Árið 1893, að ég held, kom út í Sunnanfara fyrsta lagið hans, »Mig hryggir svo margt«, sem, þrátt fyrir fremur fátæklega raddsetningu, strax vann almenningshylli um alt ís- land. Skömmu síðar fór hann að stunda tónfræðisnám með bréfavið- skiftum hjá tveim merkum tónfræðiskennurum í Bandaríkjunum. Hélt hann því áfram um all-langa hríð. Er sú kensluaðferð algeng hér í landi, þegar öðru verður ekki við komið, og gefst oft vel. Upp frá því fóru að koma út lög eftir hann hér og þar, og hefir ekki nærri alt verið prentað, sem eftir hann liggur í þá átt. Þessi lög hafa verið prentuð, og kannske fleiri:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.