Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1913, Page 61

Eimreiðin - 01.01.1913, Page 61
6i kosinn forseti þingsins, og greip hann þá til vopna, til aö ríða niður dráttar-pólitík andófsflokksins, sem tæplega gátu samrýmst stjórnarskránni. Urðu útaf þessu róstur miklar á þingi, svo að forseti lét lögreglulið greipum sópa um þingsalinn og ryðja öllum andófsmönnum burt. Var svo þingi slitið um hríð, en ekki tók þó betra við, þegar þingið kom aftur saman í september eftir sumarleyfið; risu öldurnar þá enn svo hátt, að öllum andófsmönn- um var fyrirmunuð þingseta, og situr stjórnarflokkurinn síðan einn að umræðum með öflugan lögregluvörð í kringum sig. Á Englandi hefir líka brytt á því, að harðar pólitiskar deilur innanlands væru í aðsigi, einkum og sérílagi út af frumvarpinu um heimastjórn íra. Urðu Ulsterbúar svo óðir og uppvægir, að barátta þeirra gegn heimastjórninni var um eitt skeið harla í- skyggileg. Hinsvegar virðast umræðurnar um heimastjórnarfrum- varpið á þingi harla þurrar og fjörlausar, enda miðar málinu þar lítið áfram. Nú undir árslokin bar þar einna mest á ósamlyndi hægrimanna út af tollmálunum; vilja sumir leggja toll á nauð- synjavörur, en aðrir ekki, og er við búið, að þetta valdi klofn- ingi í flokknum, og að skift verði um foringja. Rússland hefir í utanríkispólitík sinni haft mörg járn í eld- inum á umliðnu ári (Mongólíið, Persíu, Balkanríkin) og margir viljað við það vingast. í júní hittust þeir Rússakeisari og Vil- hjálmur Þýzkalandskeisari í Baltishport, og rétt á eftir brá ráða- neytisforseti Frakka, Poincaré, sér til Rússlands; og í sambandi við þá för kom svo ný skipun á herskipastól Frakka og allmikl- ar umræður um niðurskifting á flotaher þríveldabandsins (Englend- inga, Frakka og Rússa) í Miðjarðarhafinu. En svo kom Balkan- stríðið, og gáfu menn þessu þá minni gaum. Heima fyrir á Rúss- landi kom þingið saman eftir nýjar kosningar, og virðast leikar hafa farið svo, að á því sé harla lítill munur og þingi því, er rofið var. Finnar verja jafnt og þétt réttindi sín með seiglu og þol- gæði, gegn hinni sífeldu áleitni Rússa og látlausum tilraunum til að innlima þá og gera þá rússneska. En svo er frekja Rússa mikil í þeim efnum, að þeir taka þá dómara og valdsmenn Finna höndum, sem ekki vilja bregðast sannfæringu sinni og landslögum, flytja þá til Pétursborgar í rússnesk fangelsi og láta rússneska dómara dæma þá eftir rússneskum lögum fyrir óhlýðni þeirra. í Bandaríkjunum var alt sumarið háð áköf barátta um forsetakosniguna, og lauk henni svo, að forsetaefni demókrata,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.