Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1997, Blaðsíða 17

Bókasafnið - 01.04.1997, Blaðsíða 17
1 síjörnuni og tungli. .Sainib hrfur J«ín TliorlacíiiM, prrstur. ;; >n i AKUREYIU 1855. ’ ( 1 Prentil) í preutsniii'Jn Ni.rPiir- og AtKtur-nind.iiii.iiil, f ") af II. Ileip.ijni. Titilsíða Stundatals sem keypt var áfyrsta starfsári safnsins og er enn í eigu þess. ar ættu ekki að sjást á almenningsbókasöfnum. Ég held þó að það sé aldeilis ómaklegt að gera bókavörðum í almennings- bókasöfnum upp þessar skoðanir. Hins vegar er auðvitað heppilegast að þessar safnategundir komi sér upp einhvers konar samskiptaformi. Forstöðumenn almenningsbókasafna hafa tjáð mér að þeir hafi oftar en einu sinni sent kennurum framhaldsskóla bréf í þeim tilgangi að afla upplýsinga um það sem á döfinni er í kennslu hverju sinni. Þannig gætu þeir búið sig undir það sem mest verður spurt um og þeir jafnvel hætt að lána efnið út eða sett það á skammtímalán. Það er skemmst frá því að segja að fátt hefur verið um svör. Þetta vandamál þekkjum við framhaldsskólabókaverðir einnig mæta vel. Frá því að ég hóf störf fyrir tæplega 17 árum við Bókasafn Flensborgarskóla heft ég á fyrsta kennarafundi hverrar annar beðið kennara um að láta mig vita með góðum fyrirvara um öll verkefni sem fyrirhuguð eru í tengslum við safnið. Sömuleiðis heli ég beðið um að fá að vita breytingar og/eða viðbætur á leslistum (öðru nafni bókalistum) og að kjörbókalistar, einkum í íslensku, komi til mín með einhverjum fyrirvara áður en nemendur fá þá í hendur. Flestir kennarar hafa brugðist vel við þessu en svo eru aðrir (alltaf þeir sömu) sem virðast gleyma þessu. Að mínu mati er það ekki vegna þess að þeir kunni ekki að meta bókasafnið heldur virðast þeir ekki átta sig á vandamálinu eða gleyma sér. Það er því ekki að undra að þeir hinir sömu skilji ekki vandamál almenningsbókasafnsins. Helsta lausnin sem ég sé er sú að við bókaverðirnir í al- menningsbókasöfnum og framhaldsskólum tökum höndum saman og aukum á upplýsingaflæði milli safnategundanna. Með tilkomu bréfasíma er það ekki svo erfitt. Samvinna safnategundanna getur verið á ýmsa vegu • Að almenningsbókasafnið láni til framhaldsskólasafnsins bækur og gögn, þ.e. hefðbundin millisafnalán. • Að almenningsbókasafnið taki frá bækur og gögn sem vitað er að framhaldsskólanemar þurfi að nota. Þessi gögn má setja á skammtímalán eða lestrarsalslán. • Að söfnin skiptist á útprentunum á tölvuskrám einkum þó að framhaldsskólasafnið fái skrár frá almenningsbókasafninu. • Að lesstofa almenningsbókasafns sé opin um helgar á próf- tíma. • Að framhaldsskólasafnið sendi almenningsbókasafninu leslista og kjörbókalista. • Að framhaldsskólasafnið fái lista yfir úrklippusafn almenn- ingsbókasafnsins. • Aukin samvinna safnanna getur einnig hugsanlega leitt til þess að framhaldsskólasafnið geti miðlað efni til almenn- ingsbókasafnsins. • Kennarar gætu fengið lista yfir bækur sem til eru í almenningssafninu á tilteknum sviðum og notfært sér þá t.d. í sambandi við ritgerðir nemenda. Þetta mundi henta mjög vel einkum varðandi kjörbókarritgerðir í íslensku. • Að almenningsbókasafnið sé stuðningsaðili við innkaup á sérsviðunt þar sem það á við og nýtist báðum. Söfnin skipti þannig með sér innkaupum á sérsviðum eða framhaldsskóla- safnið láti almenningssafnið vita um þau svið sem það vanhagar um. HEIMILDA SKRÁ Guðni Jónsson. 1932. Minningarrit Flensborgarskótans 1882-1932. Reykjavík, Nemendasamband Flensborgarskólans. Kristján Bersi Ólafsson. 1982. Flensborgarskólinn í 100 ár. Hafnarfirði, Afmælisnefnd Flensborgarskóla. Margrét Loftsdóttir. 1990. Bókasafn Flensborgarskóla. Bókasafnið 14. s. 41-42 Skýrsla um alþýðu- og gagnfrœðaskólann í Fiensborg 1884-95. SUMMARY Cooperation between Secondary School Libraries and Public Libraries. The article is based on a speech held at the Library Association bi- annual conference 1996. It discusses cooperation between public libraries and secondary school libraries which has not been especially effective. It gives an historical account of the Flensburg Secondary School Library which was founded in 1893-94. For many years it had so few books that it was kept in a single glass cabinet. The first librarian was one of the school's teachers. Eyjólfur Guðmundsson, who was appointed in 1973 when room was made for the library in three former classrooms. The author was appointed librarian in 1980. The article describes the role of the library in the secondary school system and ends by discussing possible cooperation between the two types of libraries in the future. ÁA BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.