Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Page 84
«4
Nú á margur bágt
Tyrkir hótuðu þá að kaupa eigi vopn og vörur hjá frakk-
neskum verksmiðjum, heldur skyldu þeir panta þær hjá
Pjóðverjum.
Fjöldi Armeninga hefur leitað til Kákasuslandanna
og til Rússlands, aðrir búa í bæjum og borgum víðsveg-
ar í löndum Tyrkja, einkum í Litlu-Asíu. í Konstantínópel
og fleiri bæjum á Tyrklandi hafa og margir Armeningar
setst að. En Tyrkir hafa nú notað tækifærið, sem ófriður-
itin bauð þeim, er þeir voru orðnir bandamenn fjóðverja,
til þess að myrða svo marga Armeninga, sem þeir hafa
getað yfir komist. Englendingar hafa kvartað yfir þessu,
og menn úr Norður-Ameríku og víðar úr hlutlausum lönd-
um hafa reynt að hjálpa; en Tyrkir tóku ekkert tillit til
slíkra manna, og þýska stjórnin vísaði máli þessu frá sjer
sem innlendu tyrknesku máli, hversu mikinn viðbjóð sem
margir Pjóðverjar annars hafa á þessum hryðjuverkum
Tyrkja. Það er fullyrt, að sendiherra Pjóðverja í Mikla-
garði hafi reynt að hjálpa, en hann fekk enga áheyrn hjá
stjórn sinni og varð að fara frá embætti. Englendingar
hafa fyrir skömmu gefið út »bláa bók« um morðverk þessi,
og segir þar, að 600000 Armeningar hafi verið myrtir.
Pessi tala er líklega frá vorinu 1915 eða fyrri hluta sum-
ars það ár. Dönsk lcona, Inga Nalbandian, segir í
bók, »Den store Jammer«, sem hún hefur ritað og nú er
nýkomin á prent, um hörmungarnar miklu, er gengið hafa
yfir Armeninga, að höfuðbiskup (patriark) þeirra í Kon-
stantínópel hafi sagt sjer í september 1915, að búið væri
að myrða alt að 800000 manna, en það sje of lítið. Hún
segir, að tala þeirra, sem myrtir hafa verið, nálgist hálfa
aðra miljón.
Frú Inga Nalbandian hefur dvalið mörg ár í Mikla-
garði. Hún var gift armenskum manni, er hjet Faul Mar-
diros Nalbandian. Hann dó í Konstantínópel 15. ágúst
1916, og flýði þá ekkja hans til átthaga sinna. í septem-