Aldamót - 01.01.1893, Blaðsíða 26
26
vissu það fullvel, að ráðsályktanir drottins eru eng-
an veginn á reiki, heldur óumbreytanlegar eins og
sjálfur hann. En það er sársauki hins guðdómlega
kærleika, sem verið er að lýsa með líking þessari.
Ráð mannanna er á reiki, en ekki drottins. Ýmist
risa þeir upp í vonzku sinni, og synd þeirra hróp-
ar til himins, eða þeir snúa sjer til drottins og leita
liknar og miskunnar. Þegar vonzka þeirra er mik-
il, hegnir drottinn. Þegar þeir snúa sjer til hans,
liknar hann. Hann er sífellt hinn sami og kærleik-
ur haus óumbreytanlegur, hvort sem hann birtist í
hegning eða líkn. Að drottinn iðrast þýðir því ætíð,
að hann breytir til við mennina eptir því sem þeir
breytast gagnvart honum. — Þessi tilfærði staður
skýrir sig líka sjálfur, þegar að er gáð, því orðin :
»Og honum sárnaði það í hjarta sínu«, eru einmitt
útskýring á orðinu »hann iðraðist«, og tákna sárs-
auka hins himneska kærleika yfir því, að verða að
breyta líkn sinni í hegning.
»Mig iðrar þess, að jeg gjörði Sál að konungi,
því hann hefur snúið sjer frá mjer og ekki hlýtt
mítium orðum«. Svo hljóðar orð drottins tii Samú-
■els1. Það er auðsætt að drottinn er hjer ekki að
kvarta utn, að honum hafi yfirsjezt, þegar hann
gjörði Sál að konungi. Heldur tilkynnir hann Sam-
úel á þennan hátt, að hann ætli sjer að svipta Sál
konungstigninni, sökum óhlýðni hans. Samúel skildi
líka orð drottins þannig, eins og best sjezt af við-
tali hans við Sál, daginn eptir, þegar hann boðar
honum þessa ráðsályktun drottins. »1 dag hetur
drottinn rifið konungdóminn frá þjer og gefið hann
öðrum, sem er betri en þú. Ekki lýgur Israels at-
1) Sam. 15, 11.