Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Side 3
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
3
IÐUNN
GARÐAR SVERRISSON
Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska
þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem
fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi
óperunnar þar sem honum tekst með fágætum
viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum.
Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er
viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar.
Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og
hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá
vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og
utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og
skugga öfundar og umtals.
Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir
metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans
um Kristján Jóhannsson er grípandi og
feikilega vel skrifuð.
VANDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 Á R ♦
STEINUNN SIGURÐARDOTTIR
%«.
Að landlæknisdótturinni glæsilegu, Oldu
Ivarsen, standa sterkir stofnar valmenna
og kvenskörunga. Hér stíga ættmenni
hennar fram á sjónarsviðið, eitt af öðru,
séð með augum samferðarmanna sinna.
Þetta er mikill ættbogi, „þrútinn af
lítillæti, manngæsku og stórhug,“ en
byrgir bresti sína og leyndarmál bak við
luktar dyr.
I þessari margslungnu og áleitnu
skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur er
saga þessa fólks sögð í eftirmælum,
greinum og sendibréfum héðan og að
handan. Öll er sú saga ofin ísmeygilegri
kímni, nöpru háði og einlægri samúð. Og
eins og oft gerist í eftirmælum segir það
sem ósagt er látið einatt hálfa söguna.
Steinunn Sigurðardóttir hefur á
undanförnum árum unnið marga sigra
með ritverkum sínum, sögum og ljóðum
og hlotið fyrir þau mikið lof. Síðasta
orðið er viðamikið og frumlegt skáldverk
þar sem hún leikur sér listilega að máli og
stíl eins og henni einni er lagið.
IÐUNN
VANDAÐAR BÆKUR I 45 AR
U-