Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Side 16
16
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Helgaírskák
Er tvær umferöir voru til loka
ólympíuskákmótsins í Novi Sad í
Júgóslavíu var sveit íslendinga í
sjöunda sæti. Þó var engin sérstök
ástæöa til bjartsýni því að ljóst var
aö mótherjar síðustu umferðanna
yröu engir aukvisar. Sú varð og
raunin. Fyrst mætti sveitin óá-
rennilegu liði Englendinga sem
vakti slæmar minningar frá ólymp-
íumótinu í Dubai fyrir fjórum
árum er þeir „hreinsuðu til“ á öll-
um borðum. Og í lokaumferðinni
var teflt við sjálfa Sovétmenn sem
báru höfuö og herðar yfir aðra.
En við létum ekki vaða yfir okk-
ur. Niðurstaðán úr glímunni við
Englendinga á næstefsta borði og
síðan í lokaumferðinni við Sovét-
menn við sjálft háboröið var sú að
íslenska sveitin hrapaði aöeins um
eitt sæti. Útkoman varð áttunda
sæti af hundraö og átta keppnis-
sveitum sem er næstbesti árangur
íslands frá upphafi.
Danir í 37. sæti
í Dubai urðu íslendingar í 5. sæti
og besti árangur þar á undan var
í Havana 1966 er sveitin varö í 11.
sæti. Síöast, í Þessalóniku 1988,
varð lið íslands í 15. sæti. Útkoman
í Novi Sad var frábær ef haft er í
huga að liöið var lengi að taka við
sér og hrökk ekki í gang fyrr en
um miðbik mótsins. Fyrirfram var
stefnan tekin á eitt af tíu efstu sæt-
unum og það tókst nokkuð áfalla-
laust.
Ólympíulandslið íslands i skák sem stóð sig svo frábærlega í Novi Sad.
leikjum með hrók og drottningu.
22. - Rf8
Ef 22. - Dxc3 gengur ekki 23. Hf3?
Dxal+ 24. Rfl Bx4! og kóngur
svarts sleppur út, en einfaldlega 23.
Ha2! viðheldur hótununum, þótt
vinningsleiðin verði þá eilítið frá-
brugðin.
23. Dh8+ Kf7(?)
Enn reiknar stæröfræðidoktor-
inn skakkt! meira viðnám veitti 23.
- Ke6 24. Dh3 Kd7 en eftir 25. Rxd6+
Kc6 26. Rxe8 Rxe8 27. Bb4! (best)
fellur peðið á d3 og hvítur á hrók
og þrjú peð gegn tveimur léttum
mönnum svarts og slæmri kóngs-
stöðu. Hvíta staðan er unnin.
24. Hf3 gxfa 25. Dh5 +! Rg6 26. Dxf5 +
Og í þessari stöðu lagði Nunn
niður vopn. Eftir 26. - Kg7 27. Df7 +
(ekki 27. Hg3? Bg5! 28. Hxg5 Df7 og
bjargar taflinu en þetta er hins veg-
ar vinningsleiðin, hefði svartur
drepið á c3 í 22. leik.) Kh6 28. Hh3 +
Rh4 29. Hxh4 Bxh4 30. Dxc7 er
drottningin fallin og staðan hrunin.
Að síðustu fjörug skák Helga við
sovéska stórmeistarann Boris Gelf-
and á fyrsta borði í lokaumferð-
inni. Helgi komst nálægt þvi að
jafna taflið með svörtu en hafði þóx
sífellt yfir sér „einhver leiðindi" -
sovésku stórmeistararnir eru
kunnir að því að gera sér mat úr
litlu.
Gelfand hrökk bersýnilega í kút
er Helgi laumaöi biskup sínum upp
í borð til hans. Gelfand varð aö
gefa skiptamun en haföi hættuleg-
ar máthótanir í frammi. En Helgi
Áttunda sætið í Novi Sad:
Sovétmenn urðu ótvíræðir
ólympíumeistarar, fengu 39 vinn-
inga. Silfurverðlaun komu í hlut
Bandaríkjamanna sem sigldu fram
úr Englendingum á síðustu stundu.
Þessar sveitir fengu 35,5 v. en
bandaríska sveitin hafði betur á
Bucholz-stigum, sem eru fundin
með því að leggja saman vinninga-
fiölda mótheijanna. Með þeim má
finna út hvaöa sveit hefur mætt
sterkustu andstæðingunum á mót-
inu og þannig er skorið úr um nið-
urrööun ef sveitir hljóta jafnmarga
vinninga.
Sveit Tékka kom á óvart með því
aö hreppa fiórða sætið með 34,5 v.
A-sveit Júgóslava varð í 5. sæti og
olli heimamönnum talsverðum
vonbrigðum. Ljubojevic gekk hrap-
allega á fyrsta borði og náði ekki
50% vinningshlutfalli. Kínverjar
skutust upp í 6. sætiö með því að
vinna Júgóslava i lokaumferðinni
og Kúbumenn urðu í 7. sæti. Þessar
sveitir fengu allar 33 v.
íslendingar fengu 32,5 v. og höfðu
besta Bucholz-stigatölu þeirra
sveitá: Vestur-Þjóðveija, Indverja,
Svía, Hollendinga og B-sveitar
Júgóslava. Þess má geta að frænd-
ur vorir á Norðurlöndum að Svíum
frátöldum, voru langt fyrir neðan.
Finnar urðu í 24. sæti, Norðmenn
í 36. sæti, Danir í 37. sæti og Færey-
ingar í 78. sæti.
Verðlaunasæti næst?
íslensk sveit hefur aldrei náö
jafnbetri árangri. Sveitin beið lægri
hlut í fiórum viðureignum og öllum
með minnsta mun. Jafntefli 2-2 við
silfur- og bronsverðlaunahafana
sýnir okkur að við eigum í fullu tré
viö sterkustu þjóðirnar. „Ég hef átt
von á því s.l. tíu ár að íslendingar
nái verðlaunasæti,“ sagði David
Anderton, liðsstjóri Englendinga.
Vonandi þarf hann ekki að bíða í
önnur tíu en árangurinn nú sýnir
að við eigum að geta sett markið
enn hærra.
Jóhann Hjartarson náði besta
vinningshlutfalli íslendinga þrátt
fyrir tap í síðustu umferð gegn Sov-
étmanninum Bareev. Jóhann fékk
8,5 v. af 13 á fiórða borði. Helgi
Ólafsson stóð fyrir sínu á fyrsta
borði gegn erfiöustu mótherjunum,
fékk 6,5 v. af 12. Margeir fékk 7 v.
af 13 á 2. borði og Jón L. fékk 7,5
v. af 12 á þriðja borði. Héðinn Stein-
grímsson og Björgvin Jónsson
gegndu erfiöu hlutskipti vara-
mannsins. Þeir fengu báðir 1,5 v.
úr þremur skákum. Báðir gerðu
sér lítið fyrir og unnu sína fyrstu
skák á ólympíumóti. Mótið var
þeim áreiðanlega góður skóli, þótt
þeir hefðu ekki fengið fleiri tæk-
ifæri á að spreyta sig en raun bar
vitni.
Ljóóalestur
Áskell Örn Kárason, liðsstjóri ís-
lendinga, stóð sig meö miklum
ágætum og mikill styrkur var að
Gunnari Eyjólfssyni leikara sem
var sérstakur aðstoðarmaður
sveitarinnar. Hann stjómaöi dag-
legum morgungöngum og öndun-
aræfingum og átti ekki lítinn þátt
í góöu jafnvægi okkar og frammi-
stöðu. Síðustu klukkustundina fyr-
ir skák stilltu keppendur saman
strengi sína og Gunnar stappaði í
þá stálinu. Fyrir síöustu umferð-
irnar auögaði hann andann og kom
öllum í baráttuskap með því að lesa
ljóð Einars Benediktssonar. Sú ný-
breytni gafst vel og hver veit nema
nokkrar ljóðabækur leynist hér eft-
ir í ferðatöskum skákmanna. Ekki
má heldur gleyma Þráni Guð-
mundssyni sem sótti þing FIDE en
honum fylgja ætíð góðir straumar.
Skákáhugi er óvíða meiri en í
Júgóslavíu og Júgóslavar stóðu að
ólympíumótinu með miklum sóma.
Teflt var í stórri sýningar- og
íþróttahöll og margt var um mann-
inn á áhorfendapöllunum. Júgósla-
varnir létu líka í sér heyra ef þeim
líkaði eitthvað og gjarnan var
klappað fyrir fallegum leikjum.
Næsta ólympíumót er fyrirhugað á
Puerto Rico að tveimur árum liðn-
Skák
Jón L. Árnason
um. Þá verður að taka stefnuna á
einn af góðmálmunum.
„Óvænt katastrófa"
Skák mín við enska stórmeistar-
ann og stærðfræðidoktorinn John
Nunn vakti talsverða athygli ytra,
enda ekki á hverjum degi sem sá
mikli fræðimaður tapar í 26 leikj-
um í sinni eftirlætisbyrjun! Hann
hefur nýlokið við að skrifa bók um
afbrigðið sem varð uppi á teningn-
um en er á hólminn var komið
mundi hann ekki hvað hann hefði
sett þar á blað. „Óvænt kata-
strófa“ segir um skákina í móts-
blaðinu.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: John Nunn (England)
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. (L0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0
8. a4
Hindrar Marshall-árásina, sem
hefst með 8. c3 d5.
8. - Bb7 9. d3 d6 10. Rc3 Ra5 11. Ba2
b4 12. Re2 c5 13. c3 bxc3 14. bxc3 c4
15. Rg3 Rd7 16. Ba3 He8?
í bók Nunn er vitnað í skákina
Kupreitsjik - Am. Rodriguez frá
skákmótinu í Minsk 1982, þar sem
svartur lék 16. - g6. í ljós kemur
aö það er nauðsynleg varúðarráö-
stöfun. Nú fer snögglega að halla
undan fæti.
17. RI5 Dc7 18. Rd2!
Svartur fær nú ekki valdað c4-
peðið þar eð 18. - Rb6 19. Bb4 er
afleitt. Næsti leikur hans er því
þvingaður.
18. - cxd3 19. Dh5! g6
Annar þvingaður leikur.
20. Bxf7 +! Kxf7 21. Dxh7+ KfB
Kóngur svarts hrekst út á borð.
Slæmt var 21. - Ke6 vegna 22. Rg7 +
Kf6 23. He3 o.s.frv. og 21. - KÍ8 22.
Dg7 er strax mát. E.t.v. hefur Nunn
nú aðeins reiknað með 22. Dg7 +
Ke6 23. Dxg6+ Kd7 24. Rg7+ Kd7
og kóngurinn sleppur yfir á drottn-
ingarvæng. Nú þarf meira púður í
sóknina!
22. He3!
Liðsaukinn kemur í tæka tíð. Nú
er 22. - gxí5 23. Dxf5+ mát í fáum
varðist af nákvæmni og svo fór að
Gelfand varð að gjöra svo vel aö
þráskáka.
Hvítt: Boris Gelfand (Sovétríkin)
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
Be7 5. Bf4 0-0 6. e3 Rbd7 7. Dc2 c6
8. h3 He8 9. a3 BI8 10. Bd3 dxc4 11.
Bxc4 Rd5 12. Bh2 Rxc3 13. bxc3 b6
14. 0-0 Bb7 15. Bd3 g6 16. a4 c5 17.
e4 Dc8 18. Dd2 Ba6 19. a5 Bxd3 20.
Dxd3 Bh6 21. axb6 axb6 22. Hxa8
Dxa8 23. d5 exd5 24. exd5 b5 25. d6
Dc6 27. Hel b4 28. Dc4 bxc3 29. He7
Hf8 30. Re5 Rxe5 31. Bxe5 c2 32.
Dxc2 Dd5 33. Db2 Bg5 34. Hb7
34. - Bcl! 35. Dxcl Dxb7 36. Dg5 15!
37. h4 Dd5 38. f4 c4 39. h5 De6 40.
hxg6 Dxg6 41. Dh4 De6 42. Kf2 Hc8
43. Dg5+ Kf8 44. Dg7+ Ke8 45.
Dh8+ Kd7 46. Dxh7+ Kc6 47. Da7
Dd5 48. Da6+
Og jafntefli, því að hvítur verður
að þráskáka. Ekki gengur 48. d7?
vegna 48. - Hg8! og svartur vinnur.
Þess má geta að fram að skákinni
við Gelfand hafði Helgi fiórum sinn-
um teflt viö Sovétmann á ólympíu-
móti og ávallt tapað! Þetta var því
mikilvægur hálfur sigur. -JLÁ