Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Page 58
tötíáJÖMtGÍÍ$?15: DESÉÉÍÉer ’lð&Ö.1
66'
Afmæli
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson, bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar, Byggðarholti 5, Mosfells-
bæ, verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Páll fæddist í Reykjavík, ólst upp
í Vestmannaeyjum frá tveggja ára
aldri og síðan í Reykjavík frá átta
ára aldri. Hann lauk stúdentsprófi
frá MH1971 og kandídatsprófi í við-
skiptafræði frá HÍ vorið 1975.
Samhliða háskólanámi starfaði
Páll hjáPósti og síma, hagdeild við
úrlausn ýmissa verkefna og stund-
aði einnig kennslu við Póst- og síma-
skólann. Þá starfaði hann hjá Ham-
arsbúð hf. við afgreiðslu varahluta.
Að háskólanámi loknu og til hausts
1978 starfaði Páll hjá ferðaskrifstof-
unni Smrnu og Air Viking um tíma,
stundaði fasteignasölu og kenndi
bókhald við Póst- og símaskólann.
Hann var bæjarritari Vestmanna-
eyjabæjar 1978-82 en var þá ráðinn
sveitarstjóri hjá Mosfellshreppi.
Hann hefur gegnt því starfi síðan
en varð bæjarstjóri er Mosfellssveit
varð Mosfellsbær í ágúst 1987.
Páll hefur unnið ýmis störf á veg-
um Samtaka sveitarfélaga. Hann
hefur verið stjórnarmaður í Tölvu-
þjónustu sveitarfélaga frá 1982,
stjómarmaður í Launanefnd sveit-
arfélaga frá 1986 og formaður stjórn-
ar frá 1988, stjórnarmaður í Sorp-
eyðingu höfuðborgarsvæðisins frá
stofnun 1988, hefur tekið þátt í starfi
vinnuhóps um samstarf sex sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu um
samræmdar almenningssamgöng-
ur, starfaði sem fulltrúi Sambands
íslenskra sveitafélaga í nefnd um
fjárhagsstöðu sveitarfélaga og hefur
verið endurskoðandi reikinga Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og
Innheimtustofnunar sveitarfélaga,
auk þess sem hann hefur unnið að
norrænu vinabæjasamstarfi.
Fjölskylda
Páll kvæntist 25.9.1971 Ingibjörgu
Flygenring, f. 9.6.1950, félagsráð-
gjafa en hún er dóttir Olafs H. Flyg-
enring, verslunarmanns í Reykja-
vík, og Láru Flygenring.
Börn Páls og Ingibjargar em Jó-
hanna Sigríður, f. 12.8.1971, nemi í
MH, og Ólafur Haukur, f. 19.3.1978,
nemi.
Alsystkini Páls em Fanný Guð-
jónsdóttir og Heijólfur Guðjónsson.
Hálfsystkini Páls sammæðra eru
Jón Jóhannsson og Sigríður Jó-
hannsdóttir.
Hálfsystkini Páls samfeöra em
Guðjón Ýr Guðjénsson, Erla Björg
Guðjónsdóttir og Friðjón Guðjóns-
Páll Guðjónsson.
Foreldrar Páls eru Guðjón Páls-
son, f. 23.8.1929, hljóðfæraleikari,
og Rebekka H. Kristjánsdóttir, f.
14.6.1932, húsmóðir.
Jón William Magnússon
Jón William Magnússon forstjóri,
Krossholti 6, Keflavík, verður fimm-
tugurámorgun.
Starfsferill
Jón William fæddist á Ólafsfirði
og ólst þar upp. Hann lærði fyrst
vélvirkjun hjá Vélsmiðju 01. Olsen
árið 1965 og síðan pípulagnir hjá
ElíasiNikolaisyni.
Jón stofnaði ásamt öðrum Ofna-
smiðju Suðurnesjá árið 1972 og hann
byggði Hótel Keflavík árið 1986.
Fjölskylda
Jón William kvæntist 7.10.1961
Unni Ingunni Steinþórsdóttur, f.
13.2.1942, húsmóður en hún er dótt-
ir Steinþórs Sighvatssonar og Sig-
ríðar Stefánsdóttur í Keflavík.
Börn Jóns Williams og Unnar Ing-
unnar eru Magnús Jónsson, f. 2.2.
1962, sjómaður í Keflavík, kvæntur
Ellu Björk Björnsdóttur húsmóður;
Steinþór Jónsson, f. 22.10.1963, hót-
elstjóri í Keflavík, kvæntur Hildi
Sigurðardóttur húsmóður og eiga
þau tvö börn, Lilju Karen, f. 29.9.
1987 ogKatrínu Helgu, f. 2L9.1989;
Guðlaug Helga Jónsdóttir, f. 31.10.
1966, kennari í Keflavík, gift Jann
Ólafi Guðmundssyni tölvutækni-
fræðingi og eiga þau tvö börn,
Samúel Albert, f. 24.11.1987, og Jak-
ob Elvar, f. 25.8.1989; Davíð Jóns-
son, f. 16.8.1976, í foreldrahúsum.
Systkini Jóns Williams: Jóhann
Magnússon, f. 29.9.1922, búsettur
að Hombrekku í Ólafsfirði; Rós-
björgKristínMagnúsdóttir, f. 10.9.
1925, húsmóðir á Siglufirði, gift Jón-
asi Stefánssyni og eiga þau fjögur
börn; Sigríður Magnúsdóttir, f. 31.5.
1924, d. 15.3.1951, en hún eignaðist
eitt barn, og Jakobína Anna Magn-
úsdóttir, f. 16.10.1927, húsmóðir í
Njarðvíkum, gift Karli Olsen og eiga
þau níu börn. Fóstursystir Jóns
Wilhams er Valgerður Óla Þor-
bergsdóttir, f. 18.4.1936, gift Ingva
Ingvasyni og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Jóns Williams voru
Jón William Magnússon.
Magnús Jónsson, f. 18.4.1893, d. 4.6.
1973, sjómaður, og Guðlaug Helga
Jóhannesdóttir, f. 22.8.1894, d. 29.7.
1970, húsmóðir.
Jón William tekur á móti gestum
að Víkurbraut 2, Keflavík, „Litlu
milljón", efri hæð, milli klukkan 17
og 19 sunnudaginn 16.12.
Marín Sjöfn Geirsdóttir kennari,
Hjaltabakka 30, Reykjavík, verður
fimmtugámorgun. ,
Starfsferill
Marín fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk stúdentsprófi og
stundaði síðan kennslu. Marin var við
enskunám í Bretlandi 1958 og stund-
aði frönskunám i Frakklandi 1969.
Hún starfaði við ferðaskrifstofuna
Útsýn árið 1968 og sama ár viö
Ferðaskrifstofuna Sunnu á Mall-
orca. Þá vann hún skrifstofustörf á
Borgarspítalanum 1972-75 og 1989
en stundar nú kennslu.
Fjölskylda
Eiginmaður Marínar er Ólafur
Ólafsson, f. 20.1.1940, húsvörður viö
Landsbókasafnið í Reykjavík.
Sonur Marínar er Örvar Omri
Ólafsson, f. 4.1.1979, nemi.
Marín átti einn bróður sem nú er
látinn. Sá var Jón Örvar Geirsson,
f. 2.2.1947, d. 1986, læknir á Akur-
eyri en unnusta hans var Helga
Þórðardóttir og er þeirra sonur Jón
Örvar Geirsson Jónsson.
Foreldrar Marínar: Geir G. Jóns-
son, f. 1.8.1912, stórkaupmaður og
ræðismaður Mexíkó á árunum
1976-85, og Sólveig Jónsdóttir, f. 15.9.
1912.
Marín verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Marín Sjöfn Geirsdóttir.
Lárus Hafsteinn
Lárusson
Lárus Hafsteinn Lárusson.
Lárus Hafsteinn Lárusson, húsa-
smiður og bóndi að Háleggsstöðum
í Deildardal í Skagafirði, er fimm-
tugurídag.
Fjölskylda
Lárus kvæntist 13.4.1963 Þórönnu
Kristínu Hjálmarsdóttur, f. 12.4.
1936, fiskverkunarkonu en þau hófu
sambúð árið 1960. Þóranna Kristín
er dóttir Híálmars Pálsson, b. á Há-
leggsstöðum, Hofsósi, og Steinunn-
arHjálmarsdóttur.
Lárus Hafsteinn og Þór anna Krist-
ín eiga þrjúbörn. Þau eru Þórður
Steinar Lárusson, f. 16.8.1965, sjó-
maður í Hafnarfirði, kvæntur Þór-
björgu Bergsdóttur og á hann tvær
dætur frá fyrri sambúð, Láru, f. 20.6.
1985, og Sólveigu Önnu, f. 20.9.1988;
Einar Jóhannes Lárusson, f. 13.6.
1967, nemi við Stýrimannaskólann
í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu
Helgu Haröardóttur; Steinunn
DaníelaLárusdóttir, f. 28.1.1976,
nemi í foreldrahúsum.
Foreldrar Lárusar Hafsteins: Lár-
us Ingvar Sigurðsson, f. 10.4.1911,
fyrrv. skipstjóri í Hnífsdal en nú í
Mosfellsbæ, og Daníela Jóna Jó-
hannesdóttir, f. 14.2.1914, d. 8.3.1981,
húsmóðir.
Til hamingju með
afmælið 15. desember
75 ára
Bjarni Ellert Bjarnason,
Melabraut 4, Seltjarnarnesi.
Unnur Ágústsdóttir,
Sóleyjargötu 23, Reykjavík.
70 ára
Jóna G. Nikulásdóttir,
Sæbliki, Raufarhafharhreppi.
50 ára
Jón Ármann Si{ Súlunesi3, Garð íurjónsson, abæ
40ára
60 ára
Magnús Bjarnason,
Hátúni 5, Eskifiröi.
Einar Kristjánsson,
Stórateigi 33, Mosfellsbæ.
Guðjón Guðmundsson,
Njálsgerði 14, Hvolhreppi.
Guðný Rut Jónsdóttir,
Neðstabergi 8, Reykjavik.
Marín Sjöfn Geirsdóttir
Meiming
Bootlegs/Bootlegs - Steinar hf.
Bootlegs á
beinu brautina
Eiginlegar íslenskar þungarokksplötur hafa veriö sorglega fáar síðustu
árin. Ef undanskildar eru afbragðsgóðar plötur Gildrunnar, sem varla
geta þó flokkast undir þungarokk nema að hluta, hefur þaö komið í hlut
Bootlegs að halda uppi merki íslenskra þungarokkara.
Nýja breiðskífan frá Bootlegs sýnir svo ekki verður um villst að sveitin
hefur tekið stórstígum framförum frá því fyrsta breiðskífan, WC Monst-
er, var hljóðrituð í tímahraki. Lagasmíðar eru allar aðrar og betri, hljóð-
færaleikur öruggari og hljómurinn allur annar og betri.
Eins og títt er um þær þungarokkssveitir, sem njóta hvað mestrar hylli
í dag, leikur Bootlegs hrátt og hratt, en ekki lengur svo mjög óagað rokk.
Hröð kaflaskipti og tíðar taktbreytingar einkenna tónlistina en strákunum
Nýjar plötur
Sigurður Sverrisson
hefur tekist merkilega vel að skapa sér sinn eigin stíl. Gítarsóló eru t.d.
blessunarlega laus við þá „frasa“ sem einkenna allt of margar þunga-
rokksplötur í dag. Trommu- og bassaleikur er afar sannfærandi en þaö
er helst að söngurinn sé veikur hlekkur.
Lögin á geisladiskinum eru 14 talsins og eru kannski fullmörg. Sumum
þeirra styttri hefði að ósekju mátt sleppa en vinna þess í stað betur úr
góðum hugmyndum í lögum á borð við Forleik og Við dauðans dyr. Ég
hefði gjarnan viljað heyra það síðamefnda í tvöfalt lengri útgáfu - sann-
kallaðan íslenskan þungarokksópus „a la Metallica" - jafn frábært og
það er.
Sá er þetta skrifar lét í ljósi ánægju með frumraun Bootlegs. Hún gaf
góð fyrirheit, fyrirheit sem nú hafa orðið að veruleika á annarri breið-
skífu hljómsveitarinnar.
Það er húmor í strákunum í Boptlegs. Hann kemur vel í ljós í lögunum
Tippikal, Gamli Nói og Jólarokk. í fyrsttalda laginu getur að heyra dæmi-
gert „þungarokkslag" að hætti Bandaríkjamanna með tilheyrandi
frammíköllum. í Gamla Nóa fara strákarnir frjálslega með gamalkunn-
ugt stef og gera það meistaralega vel.
Bootlegs-platan er uppfull af góðu efni. Með smániðurskurði heföi heild-
armyndin þó orðið enn betri. Þaö breytir þó ekki þeirri staðreynd að við
höfum hér bestu þungarokksplötu íslandssögunnar. Til hamingju, strák-
ar!