Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1961, Side 19
ÓLAFUR JÓNSSON:
Búnaðarfræðsla og alþjóðleg samvinna.
Fyrir nokkrum mánuðum kom hér til Islands, og meðal
annars til Akureyrar, rektor danska Landbúnaðar- og dýra-
læknaháskólans í Kaupmannahöfn, prófessor Axel Milthers.
Hann kom hingað á vegum OCCE, sem nefnd hefur verið
á íslenzku Efnahagssamvinnustofnun Evrópu, en nú hefur
breytt um nafn og að nokkru um verksvið og nefnist nú,
að mig minnir, Efnahags- og framkvæmdastofnun eða eitt-
hvað í þá átt, og tekur nú ekki aðeins til Evrópu heldur
einnig til Bandaríkjanna og líklega Kanada.
Aðalerindi prófessors Milthers hingað mun hafa verið, að
kynnast hér skólamálum landbúnaðarins og gera sér grein
fyrir, að hve miklu leyti þau væru samrýmanleg búnaðar-
fræðslu hinna Norðurlandanna.
Þótt ég ætti þess aðeins kost að dvelja með próf. Milthers
part úr degi að þessu sinni, þá fannst mér, að kynnin við
hann og skoðanir hans, opnuðu mér ný viðhorf og aukinn
skilning á þessum málum og reyndar einnig ýmsum fleiri
vandamálum, sem við eigum nú við að stríða, og að ég fengi
gleggri hugmynd en ég áður hafði um þá þýðingu, sem ai-
þjóðlegt samstarf getur haft fyrri okkur á mörgum sviðum.
Vil ég ekki láta undir höfuð leggjast, að gera dálitla grein
fyrir þeim nýju viðhorfum, er mér virtust opnast við þessa
heimsókn.
Það er alkunna, að þegar við fengum efnalegt og stjóm-
málalegt sjálfstæði 1918, voru þeir margir, bæði utan lands
og innan, er drógu í efa að svo fámenn þjóð fengi risið und-
ir þeim þunga, er rekstur sjálfstæðs þjóðfélags, í tiltölulega
2*