Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Blaðsíða 3
Jóna. Maria.
starf að sér og annaðist það óslitið 21 sumur, eða mest af
þeim tíma, sem ég var í Gróðrarstöðinni. Starf þetta leysti
hún af hendi með einstakri prýði, ráðdeild og samvizkusemi,
svo allir máttu vel við una.
Þótt María hefði þannig atvinnu í Gróðrarstöðinni tæp-
lega hálft árið, setti hún það ekki mjög fyrir sig. Hún var
svo vel verki farin, að hana skorti aldrei atvinnu. Vann hún
oft mikið við sauma að vetrinum, en auk þess var hún mjög
eftirsótt til þess að taka að sér heimili um lengri eða skemmri
tíma, þar sem húsmóðirin hafði forfallast vegna veikinda
eða af öðrum ástæðum. Gafst forsjá Maríu í slíkum tilfell-
um jafnan vel. Var henni meðal annars mjög sýnt um að
hæna að sér börn og unglinga. Eru þau ófá heimilin, er nutu
þessara hæfileika Maríu, eða börnin, er hún tók ástfóstri við
og nutu umhyggju hennar.
María Daníelsdóttir var fædd á Dagverðareyri 26. nóvem-
ber 1889 og andaðist á sjúkrahúsinu á Akureyri 18. ágúst
1969, tæplega áttræð að aldri. Síðustu árin dvaldi hún á Elli-
5