Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Blaðsíða 13
Þéttleiki
Mynd 1. Mat á áhrifum mismunandi fosfórskammta á þéttleika gróðurs,
21/8, 1962.
Fig. 1. Influence of different application of phosphorus on density of
grass sward, 21 /8 1962.
hefur svipaður fjöldi plantna komið upp í öllum reitum,
eða um 300 plöntur á fermetra. Á þeim reitum, sem lítið
var borið á af fosfóráburði og því ekki nægjanlegt magn af
fosfór fyrir jurtimar, voru þær illa þroskaðar, t. d. voru
aðeins 1—2 blöð á plöntunum 21/8. Hins vegar voru 2—8
blöð á hverju graisi í þeim reitum, sem plönturnar náðu í
nægan fosfór.
29. júlí 1966 var metin hlutdeild vallarfoxgrass í gróðr-
inum. Matið gerðu tveir menn, sem ekki þekktu tilrauna-
kerfið, en höfðu næga þekkingu til að greina grcjsin. Niður-
stöðuna má sjá í töflu VI.
Gróðurinn, sem komið hafði í staðinn fyrir vallarfox-
grasið var mest língresi og túnvingull. Ofurlítið var af vall-
arsveifgrasi, varpasveifgrasi og öðrum gróðri. Mjög mikið
var af língresi í reitum þar sem fosfór skorti.
Á myndum 2 og 3 eru niðurstöður fosfórmælinga í grasi
settar upp í súlurit. Á grundvelli þessara fosfórmælinga eru
15