Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Blaðsíða 81
G j ö 1 d :
Laun starfsmanna.......................... kr. 520.000,00
Efnivörur til rannsókna .................... — 25.000,00
Sími, póstur og ritföng..................... — 15.000,00
Ferðakostnaður ............................. — 30.000,00
Afskriftir af eignum........................ — 50.000,00
Ýmis kostnaður.............................. — 15.000,00
Samtals kr. 655.000,00
Áætlun þessi samþykkt samhljóða.
c) Eftirfarandi tillögur frá fjárhagsnefnd voru samþykkt-
ar samhljóða:
1) Að áskriftargjald að Ársriti Ræktunarfélags Norður-
lands hækki úr kr. 40,00 til ævifélaga og búnaðarsambanda
í kr. 65,00 og til annarra áskrifenda í kr. 110,00.
2) Að gjald fyrir jarðvegsefnagreiningar hækki úr kr.
30,00 pr. jarðvegssýni í kr. 40,00.
d) Fjárhagsnefnd lagði einnig fram svofellda tillögu, sem
samþykkt var samhljóða:
„Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands haldinn á Ak-
ureyri 24. okt. 1969 skorar á Alþingi að hækka rekstrarstyrk
til Efnarannsóknarstofu Norðurlands úr kr. 150.000,00, sem
stofan hefur fengið undanfarið, í kr. 250.000,00.“
Egill Bjarnason lagði fram eftirfarandi tillögur frá starfs-
áætlananefnd:
a) Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands haldinn á Ak-
ureyri 24. okt. 1969, telur nauðsyn að efla starfsemi Rann-
sóknarstofu Norðurlands og gera hana fjölbreyttari. í tilefni
af því samþykkir fundurinn eftirfarandi:
1) Stjórn félagsins leiti eftir húsnæði, sem henta myndi
starfsemi Rannsóknarstofunnar.
2) Lögð verði áherzla á auknar fóðurefnarannsóknir og
gerlarannsóknir.
3) Stjórn félagsins leiti eftir stofnframlögum frá búnaðar-
samböndunum og samvinnufélögunum á félagssvæði Rækt-
83