Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Blaðsíða 76
Frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga:
Teitur Björnsson; Hermóður Guðmundsson.
Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar:
Ketill Guðjónsson; Helgi Símonarson; EggertDavíðsson.
Frá Búnaðarsambandi Skagfirðinga:
Gísli Magnússon; Egill Bjarnason; Haukur Jörundsson.
Frá Búnaðarsambandi Austur-Húnvetninga:
Guðmundur Jónasson; Bjarni Jónsson.
Frá Ævifélagadeild Akureyrar:
Ármann Dalmannsson; Björn Þórðarson; Ólafur Jóns-
son; Sigurjón Steinsson.
Auk framanritaðra fulltrúa sátu fundinn:
Stjórn félagsins: Steindór Steindórsson skólameistari,
Jónas Kristjánsson og Jóhannes Sigvaldason.
Og gestir: Guðmundur Jónsson skólastjóri, Þórarinn Lár-
usson, Ævarr Hjartarson, Ólafur Vagnsson, Óskar Eiríksson,
Stefán Skaftason, Stefán Þórðarson, Jón Rögnvaldsson og
Eggert Ólafsson, Laxárdal.
2. Skýrsla stjórnarinnar:
a) Skýrsla formanns. í upphafi máls síns minntist for-
maður tveggja kvenna, þeirra Jónu Jónsdóttur og Maríu
Daníelsdóttur. Þessar konur báðar unnu um langt skeið hjá
Ræktunarfélaginu, Jóna við jarðyrkjustörf og María við
ráðskonustörf. Þær létust báðar á þessu ári, og bað formaður
fundarmenn að rísa úr sætum og votta hinum látnu heiðurs-
konum virðingu.
Þá skýrði formaður frá því, að ráðinn hefði verið nýr
starfsmaður til félagsins, Þórarinn Lárusson fóðurefnafræð-
ingur. Bauð hann Þórarinn velkominn til starfa. Formaður
skýrði einnig frá því, að farið hefði verið í gegnum bækur,
bréf og skjöl félagsins. Eru bækurnar nú geymdar í land-
búnaðarbókasafninu hér á Akureyri en bréf og skjöl í Hér-
aðsskjalasafni Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu. Þá ræddi for-
maður um Ársritið og taldi það eitt fjölbreyttasta búnaðar-
rit, sem nú kæmi út hérlendis. Að lokum þakkaði hann
stjórn og starfsmönnum gott samstarf og vel unnin störf.
78