Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 45

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 45
4. mynd. Tæki til að reka út jarðvegsdýr i Rannsóknastöðinni á Vikur- bakka. hins vegar að breyta aðferðinni lítillega. Þessi dýr hafa mörg það eðli, að kipra sig saman og mynda dvalastig, sem ekki geta hreyft sig, þegar skilyrðin verða á einhvern hátt óhent- ug, svo sem við þurrk. Auk þess yfirgefa þau ógjarnan mold- arhnausinn, enda sum þeirra ófær um að slíta sig úr jarð- vatnsdropunum, sem þau lifa í (t. d. frumdýrin). Því verður brottrekstur þessara dýra að gerast í vatni. Eru þá festar gúmmíslöngur neðan á trektarnar, og þær síðan lokaðar með klemmum. Síðan eru trektar og slöngur fylltar með vatni, og sýnishnausinn settur þar ofan í, eftir að vafið hefur verið um hann grisju. Vatnið og hnausinn í trektinni er síðan hitað ofan frá, á sama hátt og áður er lýst, allt að 30 gráð- um. (Til hitunarinnar er venjulega notuð rafmagnspera.) Eftir um sólarhring eru dýrin komin úr hnausnum ofan í vatnið í slöngunni, því að þar er vatnið kaldast, og má þá tappa þau af með vatninu úr slöngunni. Ekki verður þessi aðferð nýtt við frumverur eða plöntur, vegna þess að þær eru yfirleitt ekki sjálfhreyfanlegar. Fyrir 47

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.