Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Qupperneq 47
hluti þeirra hefur meira að segja farið einu sinni eða oftar
gegnum meltingarfæri jarðvegsdýranna. Síðan hafa sveppir
og bakteríur tekið við, og melt leifarnar á sinn hátt, unz
fullkominni breytingu (rotnun) er náð.
Það eru þessar lífrænu leifar á ýmsum rotnunarstigum,
blandaðar ólífrænum efnum, lífverunum sjálfum, ásamt
vatni og lofti o. s. frv., sem við köllum gróðurmold eða hú-
mus. Þessi gróðurmold fóstrar meginið af plöntugróðri jarð-
arinnar, en plöntugróðurinn aftur menn og dýr. Jarðvegur-
inn og gróðurmoldin sérstaklega, er því undirstaða lífsins á
landinu, og þekking á honum ætti að vera undirstöðuþekk-
ing hvers einasta barns.
Reyndar er það staðreynd, að hægt er að rækta margar
plöntur án jarðvegs, þ. e. a. s. í vatni, sem inniheldur öll
þau efni, sem jurtinni eru nauðsynleg til vaxtar og þroska,
en efnin eru um 20 talsins.
Oll þessi sömu efni fá jurtirnar úr jarðveginum, svo fram-
arlega, sem þær eru ekki fluttar burtu af staðnum, eða þau
dýr, sem á þeim lifa. Þar sem þetta gerist þó að jafnaði hvort
tveggja í ræktuninni, verður ekki hjá því komizt að bæta
næringarefnum í jarðveginn í staðinn. Búfjáráburður skil-
ar öllum efnunum aftur, sem burt voru tekin, þó í nokkuð
('iðrum hlutföllum. Augljóst er að smáverulífið er nauðsyn-
legt til að búfjáráburður geti rotnað og notazt plöntunum,
enda eykur hann yfirleitt lífsstarfsemina í jarðveginum.
Sé notaður tilbúinn áburður, bætast að jafnaði aðeins við
örfá efni (1—5), þ. e. þau efni sem plönturnar nota mest af.
Þessi efni eru plöntunum aðgengileg án umbreytinga, og
því virðast lífverur moldarinnar vera þar ónauðsynlegar, og
jafnvel óhagstæðar, þar sem eitthvað af þeim lifir einmitt á
áburðarefnunum. En hvort tveggja er það, að enn hefur
áburðarnotkunin hvergi gengið svo langt sem í vatnsrækt-
inni, að öll næringarefnin séu borin í jarðveginn, og í öðru
lagi hlýtur jafnan að falla til nokkuð af lífrænum leifum frá
plöntunum sjálfum, sem jarðvegsverur verða að sjá um að
umbreyta. Auk þess eru lífverumar nauðsynlegar til að
byggja upp jarðveginn, og viðhalda byggingu hans, svo og
4
49