Frjáls verslun - 01.12.1989, Page 79
LEGGJUM ÁHERSLU Á
ÞJÁLFUN FATLAÐRA
RÆTT VIÐ BERG ÞORGEIRSSON, FORSTÖÐUMANN ÖRVA í KÓPAVOGI
„Meginmarkmið okkar starf-
semi er að þjálfa fatlað fólk til
starfa á almennum vinnumark-
aði. Við leggjum áherslu á að
fötluðum sé gert kleift að lifa
sem eðlilegustu lífi og þess
vegna viljum við vinna gegn af-
mörkun vinnustaða fatlaðra frá
öðrum vinnustöðum þjóðfélags-
ins. Örvi er því ekki verndaður
vinnustaður í venjulegum skiln-
ingi orðsins heldur fyrst og
fremst starfsþjálfunarstaður“,
sagði Bergur Þorgeirsson for-
stöðumaður Örva í Kópavogi, en
sá vinnustaður hefur starfað um
nokkurt árabil í Kópavogi.
I lögum um málefni fatlaðra frá
1983 segir m.a: „Markmið þessara
laga er að tryggja fötluðum jafnrétti
og sambærileg lífskjör við aðra þjóð-
félagsþegna og skapa þeim skilyrði til
þess að lifa eðlilgu lífi og hasla sér völl
í samfélaginu þar sem þeim vegnar
best.“
„í reynd erum við að reyna að
starfa eftir þessum
lögum. Okkur finnst
löngu tímabært að
snúast gegn vernd-
arstefnunni, sem
hefur verið rekin
varðandi fatlaða um
langt skeið og reyna
að draga sem mest
úr einangrun þeirra.
Við leggjum megin-
áherslu á almenna
vinnuaðlögun, t.d.
rétt vinnubrögð,
góðar starfsvenjur,
aukið starfsþrek og
félagsleg sam-
skipti“, sagði Berg-
ur ennfremur.
Hjá Örva starfa
28 fatlaðir einstakl-
ingar á tvískiptum
vöktum. Auk þess
starfa þar 5 verk-
stjórar í hálfu starfi,
félagsráðgjafi og
Bergur Þorgeirsson.
VINN A
Q
BLINDRA
wi/nd/wz.
Blindravinnustofan
HAMRAHLIÐ 17
© 687333 FAX 687336
79