Frjáls verslun - 01.05.1995, Page 35
hún í eitt ár úti í Kaupmannahöfn, hún
vann hjá Verk- og kerfisfræðistofunni
í rúm sex ár og tók sér frí frá störfum í
eitt og hálft ár vegna bamsburðar og
notaði hún tækifærið á meðan hún var
heimavinnandi til að stunda námið hjá
Endurmenntunarstofnun. í byrjun
júní hóf hún störf hjá tölvudeild ís-
landsbanka. Hvers vegna fór hún í
námið? „Ég var með tölvumenntun
og langaði til að bæta við mig við-
skiptagreinum vegna þess að þegar
ég hanna tölvukerfi kemur maður inn
á svo marga þætti í rekstri fyrirtækja.
Ég var verkefnisstjóri síðustu þrjú ár-
in hjá Verk- og kerfisfræðistofunni og
þá fór ég að lesa bækur um stjórnun
Við það vaknaði hjá mér áhugi á
rekstri og stjórnun." Rósa segir að í
nýja starfinu nýti hún þekkinguna sem
hún hlaut í náminu bæði beint og
óbeint.
Rósa var ánægð með kennarana og
hvað námið sjálft varðar segir hún að
síðasta önnin hafi verið erfiðust og
tímafrekust. „Yfirhöfuð fannst mér
námið vera skemmtilegt og ég sá að
hvert fag er ein fræðigrein. Það
myndaðist skemmtilegur mórall í
Vala Hauksdóttir, stúdent frá
Sauðárkróki árið 1988 og skrif-
stofustjóri á Iögmannastofu.
„Vildi mennta mig meira en var
ekki tilbúin í langt háskólanám."
hópnum og þarna var fólk úr öllum
áttum. Þetta er öðruvísi skólaum-
hverfi en maður er vanur. Ég kynntist
mörgum góðum hugmyndum og sá að
allir voru að spá í það sama og allir
höfðu ákveðna reynslu. Ég held að
það sé gott fyrir alla, sem eru í stjórn-
unarstöðum og eru ekki með við-
skiptamenntun, að fara í þetta nám.
Ég veit ekki nema námið hafi gagnast
mér við að fá vinnu aftur en ég fékk
starfið hjá íslandsbanka fljótlega eftir
að ég byrjaði að leita mér að vinnu.
Einnig held ég að vinnuveitendur taki
tillit til þeirra sem fara í þetta nám en
það sýnir að viðkomandi hefur áhuga
á því að halda sér við í staríi og víkka
sjóndeildarhringinn. “
„MEIRIVINNA EN ÉG BJÓST VIГ
Oddur Fjalldal er svæfingalæknir á
Landspítalanum og lærði hann í
Þýskalandi og Danmörku. Þar sem
hann vinnur á vöktum kostaði það
mikla skipulagningu að geta sótt alla
tíma. Hann segir að í starfsemi
sjúkrahúsa sé rekstur vaxandi hluti af
starfinu. „Það er alltaf verið að tala
um rekstur, sparnað og hagræðingu
Garðar Garðarsson, hæstaréttar-
lögmaður í Keflavík. Lögfræðingur
með framhaldsnám í Bandaríkjun-
um á árum áður. „Námið í Endur-
menntunarstofnuninni nýtist mér
vel.“
og á sjúkrahúsinu skiptum við okkur
svoh'tið niður á verkefni tengd þessu.
Það var aðallega þess vegna sem ég
ákvað að fara í námið og auk þess til
að prófa eitthvað nýtt.“
Þar sem í náminu var mikið af fólki
úr viðskiptalífinu fékk Oddur, sem
vinnur á ríkisreknu sjúkrahúsi, aðra
sýn á hlutina heldur en ella. „Það var
gagnlegt að taka þátt í umræðunni
með öðrum en maður umgengst dag-
lega en fólkið úr viðskiptalífmu var
með aðrar hugmyndir og var það
mjög gagnlegt.“ Lesturinn og heima-
vinnan var meiri en Oddur hafði búist
við. „Ég held auk þess að flestir séu
sammála um að tímarnir í flestum
greinunum hafi verið naumir. Þetta
var mikil pressa og farið var yfir mikið
á stuttum tíma.“
„JÁKVÆÐARIOG BETRISTJÓRNANDI"
Vala Hauksdóttir er stúdent frá
Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.
Frá því hún flutti til Reykjavíkur árið
1988 hefur hún unnið hjá Lögfræði-
stofu Reykjavíkur — Skuldaskilum
hf. Þar gegnir hún starfi skrifstofu-
stjóra. Ástæðan fyrir því að hún fór í
þetta nám er sú að hún hafði ákveðna
þörf fyrir að mennta sig meira en var
samt sem áður ekki tilbúin til að fara í
háskólanám. „Það sem Endurmennt-
unarstofnun býður upp á höfðar til
mín. Stofnunin hefur á að skipa mjög
hæfum kennurum og námið er vel
uppbyggt og skipulegt. Gerð er krafa
um að þeir sem byrja í náminu hafi
starfsreynslu og/eða háskólamennt-
un því tímanum er ekki eytt í undir-
stöðuatriði. Það er ætlast til að nem-
endur hafi þá þekkingu.
Námið hefur nýst mér vel í starfí og
gerir mann að hæfari starfskrafti. í
Endurmenntunarstofnun eru ýmsar
greinar sem ég hafði aldrei kynnst
áður og ég sé hlutina í öðru ljósi eftir
að hafa farið í gegnum þetta. Ég tel
mig verajákvæðari, umburðarlyndari
og betri stjórnanda. í náminu er lögð
áhersla á mannlegu hliðina, svo sem
hvernig fólk eigi að haga sér í daglegri
umgengni. Það eitt út af fyrir sig er
ákveðinn skóli. Þessi endurmenntun
á eftir að verða stór þáttur í almennri
menntun hér á landi. í rauninni sé ég
engan mínus við þetta nám.“
35