Frjáls verslun - 01.05.1995, Page 44
FJARMAL
Lífeyrissjóðir eru gildandi fjárfestar:
AD VERA EÐA
VERA EKKI?
Lífeyrissjóðir eiga um 4,2 milljaróa í hlutabréfum. En eigaþeir að vera, eba
vera ekki, í stjórnum hlutafélaga? Þaó er stóra spurningin
Þegar enska leikritaskáldið Willam Shakespeare lét
eina söguhetju sína, Hamlet, segja setninguna: „Að vera
eða vera ekki? Það er spumingin," var hann ekki að hugsa
um setu íslenskra lífeyrissjóða í stjórnum fyrirtækja. Þessi
orð eiga samt afar vel við þegar fjallað er um þetta við-
fangsefni sem oft brennur heitt á mönnum í viðskiptalífinu.
Þannig hefur reynt á þetta mál á aðalfundum íslandsbanka
á undanfömum árum.
Lífeyrissjóðir á íslandi hafa gert sig mjög gildandi í
fjárfestingum á hlutabréfamarkaðnum. Þeir eiga samtals
um 4,2 milljarða í íslenskum fyrirtækjum í formi hluta-
bréfa. Sem betur fer. Það vantar fé í fyrirtæki. Jafnframt
er ljóst að lífeyrissjóðirnir verða enn sterkari fjárfestar á
íslenska hlutabréfamarkaðnum á næstu árum. Þeir eru
helsta uppspretta spamaðar í íslensku atvinnulífi.
Af 4,2 milljarða hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna er hlutur
Lífeyrissjóðs verslunarmanna langstærstur eða um 1,2
milljarðar króna. Næstur kemur Samvinnulífeyrissjóður-
inn með um 500 milljónir og Lífeyrisjóður Austurlands
með um 400 milljónir. Afgangurinn skiptist á milli margra
lífeyrissjóða.
AÐVERAEÐAVERA EKKI?
Hin klassíska spurning er hvort lífeyrissjóðir, sem eru
fjöldaeign og ekki í eigu neins eins aðila, eigi þá að eiga
fulltrúa í stjómum hlutafélaga og skipta sér almennt af
stjórnarkjöri í félögunum. Og þyki það eðlilegt að þeir eigi
fulltrúa í stjórnum félaga, hverjir eiga það þá að vera og
hvernig á að velja þá?
Á það að vera starfsmaður? Almennur sjóðsfélagi?
Stjómarmaður í sjóðnum? Eða óháður kunnáttumaður í
fjármálum og viðskiptum? Valið er ekki sjálfgefið. En vilji
menn að lífeyrissjóður sé sem mest óháður viðkomandi
hlutafélagi væri líklega einfaldast að velja einhvern óháðan
kunnáttumann til að setjast í stjóm hlutafélagsins.
Það skiptir vissulega máli hvaða fulltrúar lífeyrissjóð-
anna veljast í stjórnir hlutafélaga. Þeir eru nefnilega ekki
persónulegir eigendur hlutafjárins heldur gæslumenn
TEXTI: IÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
þess fyrir allan þann fjölda sem stendur á bak við líf-
eyrissjóðina.
FJÁRMAGNIFYLGIR RÉTTUR TIL VALDA
Grundvallarreglan í kapítalísku þjóðfélagi er að fjár-
magni fylgi réttur til valda. Svo einfalt er það. Út frá þeirri
reglu er réttur lífeyrissjóða og hlutabréfasjóða, svo-
SJÓNARMIÐ SJÓÐANNA
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, segir að afskiptaleysi af stjórnum hlutafélaga
sé meginreglan. Aðstæður og eignarhlutur sjósins geti
hins vegar kallað á afskipti.
44