Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 56
MARKAÐSMAL
Sagan á bak við herferðina:
Jfl, JÁ, JAHAA,
ÉG ER ULBÚINN
Söngleikjaauglýsing Pósts ogsíma við að kynna símanúmerabreytinguna þótti
misskemmtileg eins oggengur. En auglýsingin hafði tilætluð jákvæð áhrif
Viðbrögð landsmanna við síma-
númerabreytingunni sem átti sér stað
3. júní síðastliðinn eru í raun merki-
leg. Breytingin sjálf er sú umfangs-
mesta sem Póstur og sími hafa staðið
fyrir, hvert einasta símanúmer á land-
inu breyttist. Við fyrri og umfangs-
minni símanúmerabreytingar hafa
gjaman komið upp neikvæð viðbrögð
hjá notendum en slíkt heyrðist varla
hvað þessa umfangsmiklu breytingu
varðar.
Vissulega heyrðust neikvæðar
raddir um þær mundir sem breytingin
átti sér stað, en fæstar voru þær
vegna kerfisbreytingarinnar, heldur
vegna annarraþátta, s.s. vegna síma-
skrárinnar eða vegna kostnaðar
Pósts og síma vegna auglýsinga og
kynningamála.
Þótt mest hafi borið á jákvæðu
„söngleikjaauglýsingunni“ sem birt
var í sífellu síðustu dagana fyrir sjálfa
símnúmerabreytinguna spannaði
kynningarherferðin heilt ár. Auglýs-
ingastofan Nonni og Manni vann her-
ferðina sem hófst í maí 1994 með út-
sendingu bæklinga sem fylgdu síma-
reikningum.
Ársæll Baldursson hjá Pósti og
síma segir að sú kynningaraðferð sé
bæði markviss og ódýr fyrir stofnun-
ina. „Þótt fólk fái símreikninga á
þriggja mánaða fresti sendum við út
reikninga í hverjum mánuði og með
því að láta fyrsta kynningarbækling-
inn fylgja reikningunum sem frá okkur
fóru í maí, júní og júlí náðum við að
koma fyrstu skilaboðum til allra sím-
notenda. Það sama gerðum við í októ-
ber, nóvember og desember, auk
SAGANÁBAK
VID HERFERÐINA
þess sem við á þeim tíma kynntum
fyrirtækjum sérstaklega þessar
breytingar og vöktum athygli þeirra á
því að nýju sjö stafa númerin væru
notuð með þeim gömlu á höfuðborg-
arsvæðinu í nokkurn tíma áður en
stóra breytingin varð að veruleika 3.
júní. Það gerðum við sérstaklega með
fyrirtækin á landsbyggðinni í huga,
sem eru með lás á símunum sínum,
en með því að hafa bæði nýju númerin
og þau gömlu kom glufa í það kerfi og
hægt var að hringja í númer á höfuð-
borgarsvæðinu án þess að velja
svæðisnúmer.
Við lögðum einnig mikla áherslu á
að upplýsa fyrirtæki tímanlega til
þess að þeim gæfist tækifæri til þess í
tíma að breyta nafnspjöldum, reikn-
ingum og bréfsefnum. Auk þess sem
við sendum fax á öll skráð faxtæki þar
sem eigendum þeirra var
Þriðja bæklingnum var síðan dreift
til allra símnotenda með reikningun-
um í janúar, febrúar og mars. Þar
kynntum við breytinguna sem varð
þegar fólk hringir til útlanda, eða úr
90 í 00.“
Samhliða þeim bæklingi var gerð
einföld sjónvarpsauglýsing þar sem
þreytingin var kynnt. Ársæll segir að
mjög auðvelt sé að mæla árangur
þeirrar auglýsingar því samkvæmt
talningu símtala í símsvara sem
tengdur var við gamla 90 númerið
kom í ljós að tæplega 90% þeirra sem
hringdu til útlanda eftir að breytingin
átti sér stað, hringdu í rétt númer.
„Og annað dæmi um árangur auglýs-
Minnisstætt atriði úr auglýsingunni. Tilgangur hennar var að byggja upp jákvæðni í kringum símanúmerabreyting-
una 3. júní. Reynslan sýnir að ævinlega er von á neikvæðni í garð svo umfangsmikilla breytinga.
TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSS0N
56