Frjáls verslun - 01.05.1995, Síða 57
Félagar í kór Langholtskirkju komu mjög við sögu í auglýsingunni, sungu og léku í mörgum atriðanna. „Fyrst fólkið
í auglýsingunni, sem í raun og veru er þverskurður samfélagsins, var tilbúið fyrir breytinguna fundu áhorfendur
samhljóm með því og undirbjuggu sig í tíma.“
ingarinnar er að símtölum til útlanda
fjölgaði meðan á þessu kynningar-
starfi okkar stóð, þannig að í raun og
veru má tala um jákvæðar aukaverk-
anir þessarar auglýsingar."
En það var hins vegar sungna , Já,
já, já“ auglýsingin sem mesta athygli
vakti síðustu dagana fyrir símnúm-
erabreytinguna. Jón Árnason hjá
Nonna og Manna sagði að strax í upp-
hafi hafi verið ákveðið gera sjón-
varpsauglýsingu sem hefði það að
markmiðið að gera breytinguna eins
jákvæða og kostur var. „Sjálf breyt-
ingin var allt of flókin til þess að gera
henni tæmandi skil í sjónvarpsauglýs-
ingu, við vildum hins vegar byggja
upp jákvæðni á sama tíma og von var
á neikvæðni í garð breytingarinnar."
Auglýsingastofan leitaði til Kristj-
áns Friðrikssonar um úrvinnslu og
leikstjórn auglýsingarinnar. Hann
segir að í upphafi hafi verið unnið út
frá orðinu já. „Það gerðum við af
tveimur ástæðum. Bæði vegna þess
að jákvæðara orð er varla til í móður-
málinu okkar, auk þess sem já er það
orð sem oftast er notað þegar menn
svara í síma og hvað sönginn varðar,
þá er það skoplegt einkenni á íslensku
þjóðarsálinni að hefja söng við
minnsta tækifæri. Það var því úr að
við ákváðum að gera úr þessu léttan
og broslegan söngleik, í anda gömlu
amerísku söngleikjamyndanna. Ég er
heldur ekki frá því að okkur hafi tekist
það bærilega. Lagið er grípandi og
fólk sönglaði þetta stef á ólfldegustu
stöðum og tímum. Með því var til-
gangnum náð.“
„Fyrst í stað var textinn í laginu,
sem Vilhjálmur Guðjónsson var feng-
inn til að semja, eingöngu þetta eina
orð, já, en setningin „Ég er tilbúin(n)“
átti eingöngu að vera sögð af þul,“
segir Jón Árnason, „og þannig var
lagið fyrst sungið af kór Langholts-
kirkju, en það eru einmitt meðlimir
þess kórs sem bæði syngja og leika í
auglýsingunni. En okkur leist ekki
nægilega vel á þá útgáfu og bættum
því setningunni „Ég er tilbúin(n)“ inn í
söngtextann og okkur þótti mikil
bragarbót að þeirri breytingu.“
Kristján Friðriksson segir að fyrst
fólkið í auglýsingunni, sem í raun og
veru er þverskurður samfélagsins,
hafi verið tilbúið fyrir breytinguna, þá
hafi áhorfendur fundið samhljóm með
þeim og undirbúið sig í tíma, hafi það
ekki þegar verið tilbúið þegar byrjað
var að sýna auglýsinguna. Það má ef
til vill segja að þetta hafi verið nokkuð
lævíst bragð hjá okkur en það lævís-
asta við þessa auglýsingu var að sýna
gamalt og brosandi fólk í lok auglýs-
ingarinnar. Það gerðum við meðvit-
að, því allar breytingar eru erfiðar
fyrir þann aldurshóp og svo virðist
sem þetta lokaskot myndarinnar hafi
haft tilætluð áhrif.“
Söngleikjaauglýsingin var mikið
birt á stuttum tíma. Margir fengu
fljótt leið á henni og veltu því fyrir sér
hvort þörf væri á að auglýsa breyting-
una þetta oft. Ársæll Baldursson seg-
ir að auglýsingin hafi alla vega haft
tilætluð áhrif. „Mælingar hjá okkur
sýna að lítið var um að fólk gleymdi
nýju númerunum og ef það gerði það,
þá virðist mér sem fólk hafi kennt
sjálfu sér um það en ekki Pósti og
síma. Hvað breytinguna varðar get
ég því fullyrt að hún hafi ekki á neinn
hátt verið neikvæð fyrir stofnunina og
í raun og veru merkilega jákvæð.“
57