Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 8
RITSTJORNARGREIN
HAGSÆLD MEÐ HANDALÖGMÁLUM
„V issir þú að 7. júní er fyrsti dagur ársins sem þú ert
ekki að vinna fyrir hið opinbera?“ Þannig er komist
að orði í nýjum en nytsömum bæklingi sem Heim-
dallur, Félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík,
gaf út á dögunum. Þennan dag eru 43% ársins að
baki en það er hlutfall útgjalda hins opinbera og
lífeyrissjóða af vergri landsframleiðslu.
Gott er að fá þessa áminningu
Heimdallar um svipað leyti og miklar
umræður hafa átt sér stað um skýrslu
Þjóðhagsstofnunar þar sem gerður er
samanburður á launum og lífskjörum á
Islandi. Niðurstaða þeirrar skýrslu er
sú að hagsæld sé svipuð hér og í öðrum
löndum en að baki liggur mun meiri
vinna hérlendis.
í leiðurum Frjálsrar verslunar hefur
áður verið bent á að þrennt þurfi að
gera til að auka hagsæld þjóðarinnar.
Það þarf að eyða fjárlagahallanum, það
þarf að lækka matarkosnað heimila
með raunverulegu frelsi í innflutningi landbúnaðar-
vara og koma þarf á veiðileyfagjaldi í sjávarútvegi.
Þótt núverandi ríkisstjórn stefni að því að eyða
fjárlagahallanum á kjörtímabilinu er þess vart að
vænta að hægt verði að lækka skatta og opinber
gjöld í bráð vegna stöðugs hallareksturs ríkissjóðs
á undanförnum áratugum, halla sem ríkið hefur
orðið að brúa með lánum, ekki síst erlendum. Þau
lán þarf að greiða til baka.
Því miður er þjóðin föst í hjólförum hárra skatta
og útlit er fyrir að 7. júní verði áfram fyrsti dagur
ársins sem fólk er ekki í vinnu hjá hinu opinbera.
Raunar er líklegra en hitt að hann færist yfir á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní, sem að vísu er frídagur,
fremur en að hann færist framar í árinu, eins og til 1.
júní.
Fjárfestingar eru einn þáttur sem stuðlar að hag-
sæld. Fjárfestingar eru fórnir Iaunþega og fyrir-
tækja til skamms tíma í von um bætt kjör síðar.
Arðbærar fjárfestingar stækka kökuna, landsfram-
leiðsluna, en óarðbærar fjárfestingar eru eins og að
henda peningunum út um gluggann. Enginn nýtur
þeirra.
Fleiri tugir milljarða hafa tapast í
vitlausum fjárfestingum hér á landi
undanfarin ár og það tap er meðal ann-
ars orsök hárra vaxta hér á landi. En
háir vextir draga úr hvata fyrirtækja
og einstaklinga til að fjárfesta. Sömu-
leiðis draga þeir úr ráðstöfunartekjum
fólks og hagnaði fyrirtækja vegna eldri
lána. En fólk hneigist til að taka lífs-
kjör að láni á kreppuárum.
Það er ástæða til að hafa áhyggjur af
að hagsæld á Islandi muni ekki vaxa
sem skyldi á næstu árum vegna lítils
skilnings stjórnvalda á að koma á
veiðileyfagjaldi í sjávarútvegi. Það verður að verð-
leggja fiskimiðin og láta lögmál markaðarins
stjórna veiðinni og nýtingu auðlindarinnar. Auk
þess er veiðileyfagjaldið réttlætismál.
I íslenska hagkerfinu hefur aukin hagsæld náðst
með því að moka fiskinum upp úr sjónum og ganga á
fiskimiðin. Þegar draga hefur orðið úr veiðinni hef-
ur hagsældin minnkað. Þess vegna hafa handalög-
mál aukið hagsæld hér á landi fremur en markaðs-
lögmál. Það er ótraust hagsæld eins og síðustu sex
kreppuár vitna um.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 57. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir —
LJÓSMYNDARI: Bragi Þ. Jósefsson - ÚTGEFANDI: Tainakönnun hf. - SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Borgartún 23,
105 Reykjavík, sími 561-7575, fax 561-8646 - RITSTJÓRN: Sími 561-7575. - AUGLÝSINGAR: Sími 561-7575 -
ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895 kr. fyrir 1.-5. tbl., 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. —
DREIFING í bókaverslanir og sölutuma á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími GSM 89-23334.
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. - LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
8