Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 42
Þröstur Sigurjónsson viðskiptafræðingur hefurgert fróðlega könnun um viðhorf
Eiga fyrirtæki fyrst og fremst að
sinna hámörkun hagnaðar eða
eiga þau að taka ríkari ábyrgð
gagnvart samfélaginu, til dæmis í
umhverfis-, menningar- og
menntamálum og hugsa um hag
komandi kynslóða?
Tæplega helmingur svarenda
(45%) telur að hámörkun hagn-
aðar sé jafn mikilvæg annarri
ábyrgð og jafn stórt hlutfall telur
að stjómendur eigi að taka
nokkra eða ríka samfélagslega
ábyrgð. Þessar niðurstöður eru í
samræmi við vaxandi umræðu
um mikilvægi þess að fyrirtæki
axli ríka ábyrgð á starfsemi sinni.
Menn hafa í ríkari mæli skilið það
að baki fyrirtækjum standa ein-
staklingar og í slíkri stöðu eiga
þeir ekki að gegna minni ábyrgð
en sem einstaklingar í samfélagi.
Fyrirtækjum á því að vera jafn
mikið umhugað um velferð sam-
félags síns, það er þeirra hagur
jafnt sem annarra að stuðla að
betra mannlífi. Ef samfélagið
hefur tök á að mennta og þroska
þegna sína, veita þeim tækifæri
til að þróa hæfileika sína, em
fyrirtækin sjálf að hljóta hæfari
starfskraft að launum. Það ætti
því að vera langtímamarkmið
hvers fyrirtækis að stuðla að
sem mestri hagsæld samfélags-
ins alls því þannig stuðlar það
sem best að vexti og viðgangi
þess sjálfs.
Sumir stjórnendur segjast
taka ríkari siðferðislega
ábyrgð en lög og reglur segja
til um í þeim tilgangi að stjórn-
völd herði ekki enn þær reglur
MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
Eiga fyrirtæki fyrst og fremst að
sinna hámörkun hagnaðar eða
eiga þau að taka ríkari ábyrgð
g'agnvart samfélaginu?
Aó fara fram úr lögum
35% 34%
Mjög mikið Mikið Miðlungs Lítið Ekkert
Leitast þú við í ákvörðunum þín-
um að fara fram úr lögum og regl-
um og taka þannig ríkari ábyrgð
en krafist er?
Tap á sióleysi annarra?
38%
Mjög mikið Mikið Miðlungs Lítið Ekkert
Telur þú að lyrirtæki þitt hafi tap-
að í viðskiptum á siðleysi annarra,
t.d. lent í kennitölutígrisdýrum?
og lög sem nú eru í gildi. Leit-
ast þú við í ákvörðunum þínum
að fara fram úr lögum og regl-
um og taka þannig ríkari
ábyrgð en krafist er?
í ljósi krafna manna um aukið
frelsi og þá augljósu staðreynd
að ef menn gera betur en lág-
markslög og reglur segja til um
eru minni líkur á að lög og reglur
sé settar koma niðurstöðurnar
nokkuð á óvart. Rúmlega fimmt-
ungur svarenda segist lítið eða
ekkert taka ríkari ábyrgð en gerð
er krafa um og þriðjungur aðeins
miðlungs. Ef menn krefjast
minni hafta og reglna hljóta þeir
að þurfa að bera ríkari ábyrgð
sjálfir. Stjórnendur ættu ekki að
láta duga að fylgja aðeins eftir
ströngustu lögum, heldur ættu
þeir að gera betur til þess að ekki
komi til umræðna og deilna um
nauðsyn þess að herða reglur
enn frekar.
Telur þú fyrirtæki þitt hafa
tapað í viðskiptum á siðleysi
annarra (hefur þú til dæmis
verið svikin(n) í samningum,
menn gengið bak orða sinna,
hefurðu lent í kennitölutígris-
dýrum og fleira)?
Niðurstöður könnunarinnar
koma aftur á óvart ef litið er til
neikvæðrar umræðu um við-
skiptasiðferði í íslensku við-
skiptalífi. Fæstir telja sig hafa
orðið fyrir barðinu á siðleysi ann-
arra í viðskiptum. Þeir, sem
segjast lítið eða ekkert hafa tap-
að á siðlausum viðskiptum eru,
52%. Fjórðungur telur það hafa
gerst (miðlungs: 24%) en hafa
42