Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 52
HÖNNUN MÍS HF. S. 533 4900
SKOGRÆKT
plöntuna og blóm á
tómataplöntuna sem lof-
uðu góðu um framhaldið.
Hins vegar var hvíta
flugan svokallaða komin í
húsið, mönnum til
óþurftar, en talið hafði
verið að tekist hefði að
uppræta hana í fyrra. í
framtíðinni verður hægt
að lesa vínber af vínvið-
arteinungum, sem settir
voru niður í gróðurhús-
inu í fyrrasumar, en það
verða þó að öllu jöfnu að
h'ða þrjú ár frá því þeir
eru settir niður og þang-
að til reikna má með ein-
hverri vínberjasprettu.
Trjáræktin og plöntu-
uppeldið á Móaflöt er
helsta áhugamál Páls nú
um stundir. Hann segir að þama sé ævinlega nóg að gera
frá morgni til kvölds og neitar því ekki að það geti komið að
því að hann þurfi að ráða sér vinnumenn. Segist reyndar
njóta aðstoðar bónda úr
nágrenninu sem sé að
mestu hættur búskap.
„Það er gaman að þessu
og ræktunin er eitthvað
sem sækir meira á mann
þegar maður eldist. Ég
er hissa á því að bændur
skuli ekki leggja meiri
rækt við skógræktina.
Bændur á Suðurlandi
hafa nú stofnað samtök
um skógrækt og ég hef
sagt í framhaldi af því: Af
hverju voruð þið ekki
byrjaðir á þessu fyrir 50
árum? Þá vom menn
ekki að hugsa um annað
en hefðbundinn búskap
sem tók mun lengri tíma
en núorðið þegar hægt
er að ljúka heyskap sum-
arsins á hálfum mánuði, þegar best lætur. Það er því
kominn tími til að huga að nýjum búskaparháttum og þá
ætti skógræktin að koma vel til greina."
Páll og E lín hafa reist sér fallegt hús á Móaflöt. Húsið teiknaði Hörður
Bjömsson arkitekt. Hér sést eldhúsið sem er ieinu horni mikils alrýmis
þar sem eru stofa, borðstofa oggarðskáli.
HELLUSTEYPA
Komið með ykkar hugmyndir
til okkar, fagmenn aðstoða
ykkur við útfærsluna.
Gangstigar • Stéttar • Verandir • Sólpallar • Garðhleðslur • Veggir
Heimreiðar • Bílastæði • Götur • Hringtorg • og margt fleira.
Gott úrval af hellum og steinum í mörgum litum og gerðum.
Margbreytilegir samsetningar- og mynsturmöguleikar, allt eftir óskum
hvers og eins. Úrval af ýmiskonar fylgihlutum, svo sem; kantsteinum,
brotsteinum, múrsteinum og fleira.
í framleiðslu okkar er eingöngu notuð óalkalívirk landefni með
miklu brotþoli. Gerið verðsamanburð.
VAGNHÖFÐA 17 • 112 REYKJAVÍK • SÍMI 587 2222 • FAX 587 2223
52