Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 57
Dómshúsið er klætt með eir sem lítið hefur verið notað-
ur hér á landi í þessum tilgangi. A hinn bóginn hefur eir
verið notaður nokkuð á húsþök en meira þó áður fyrr.
Má sem dæmi nefna hús á Melunum.
hratt fyrst eftir að veggurinn var klæddur og útþomun
hefur haldið áfram. Yfir sumartímann hefur rakinn verið á
bilinu 60-65%. Er það talið nógu lítið til þess að steypu-
skemmdir stöðvist en járn getur samt hugsanlega haldið
áfram að tærast.“
Jón segir að engin athugun hafi verið gerð á núverandi
ástandi húsa eða öllu heldur húsveggja sem klæddir voru
fyrir alllöngu. Ekki hafi verið talið fært að fara út í að rífa
klæðningu af slíkum húsum, enda lægju heldur ekki fyrir
upplýsingar um hvert ástandið var í upphafi og allur sam-
anburður því erfiður. „Vettvangsmælingarnar eru hins
vegar gerðar á húsum sem verið var að klæða þegar
mælingamar hófust og því var lítill aukakostnaður því
samfara að koma mælunum fyrir. Þeir, sem áttu húsin og
þeir sem klæddu þau, sýndu einnig mikinn samstarfsvilja
sem ber að þakka.“
LANDINU SKIPT í TÆRINGARSVÆÐI
í tengslum við rannsóknarverkefnið um loftræstar út-
veggjaklæðningar hefur verið skipaður sérstakur vinnu-
hópur og er honum ætlað að meta tæringarhættu og
nauðsynlegar tæringarvamir. í framvinduyfirlitinu segir:
„Hérlendis hafa komið upp nokkur vandamál varðandi
tæringar festinga, vegna vanþekkingar þeirra sem taka
ákvörðun um efnisval. Þessi vandamál eru skiljanleg í ljósi
þess að mjög margir hafa stundað sitt nám erlendis og
samkvæmt erlendum fræðiritum. Aðstæður hérlendis eru
mjög ólíkar aðstæðum erlendis að mörgu leyti.“ Þessar
ólíku aðstæður byggjast aðallega á seltu samfara sjávar-
roki og miklum raka og mun þetta sérstaklega eiga við
sunnanlands og vestan en tæring er minni norðanlands og
austan. Þá segir ennfremur í yfirlitinu að til þess að fólk
geti áttað sig betur á tæringarsvæðum á landinu þyrfti að
skipta því niður í svæði eftir veðurfari og álagi. Mun sl£k
skipting vera þekkt víða erlendis og til mikils stuðnings
fyrir þá sem eru að hanna og skipuleggja mannvirki á
þessum svæðum.
KLÆÐNINGAR RANNSAKAÐAR
„í framtíðinni á að verða hægt að leiðbeina fólki um
klæðningar og ásetningu þeirra og einnig um tæringu í
framhaldi af þessum rannsóknum," segir Jón. Mun svo
sannarlega ekki veita af ef mið er tekið af þeim fjölda
klæðningartegunda sem áður var nefndur. Ný klæðning-
arefni eru stöðugt að koma fram hér og nefndi Jón þar sem
dæmi eirinn utan á Dómshúsinu, sem lítið hefur verið
notaður áður hérlendis, og klæðningu á Húsaskóla og
Tryggvagötu 15 sem er algjörlega nýtt klæðningarform.
Lokamarkmið rannsóknarverkefnisins eru m.a. að styrkja
og bæta verklag og verklagsreglur við klæðningu húsa
með loftræstum klæðningum, þróa ódýrari festingakerfi,
sem þola vel íslenskt veðurfar til langs tíma, auka skilning
á eðli og umhverfi loftræstra klæðninga hérlendis og
benda á lausnir sem auðvelda viðhald klæddra húsa í fram-
tíðinni, til dæmis endurnýjun glugga og annað tilfallandi
viðhald. Og við spyrjum Jón Sigurjónsson að því að lokum
hvort hann haldi að í framtíðinni verði öll hús klædd á
íslandi og hann svarar stutt og laggott: „Ég vona ekki.“
57