Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 20
FORSÍÐUEFNI
RIINAR SIGURÐSSON
Það er óhætt að segja að Rúnar Sigurðsson og félagi
hans hafi verið töluvert á undan sinni samtíð þegar þeir
stofnuðu fyrirtækið Tæknival árið 1983. Markmiðið var að
veita sérhæfða þjónustu á tölvuvæddum kerfum fyrir iðn-
fyritæki. En ári síðar gerðu þeir sér hins vegar ljóst að
markaðurinn var ekki reiðubúinn til að taka við þeirri nýju
tækni sem var að koma. Þá var breytt um áherslur og
fyrirtækið fór að selja ýmsar rekstrarvörur fyrir tölvur.
Náði fyrirtækið smám saman sterkri stöðu sem söluaðili á
disklingum og var síðar með yfirburðastöðu í sölu rekstr-
arvara fyrir tölvur auk þess sem fyrirtækið starfaði í sam-
ræmi við upphafleg markmið.
„Við vorum, eins og margir ungir menn á þeim tíma,
með enga peninga en fullir af bjartsýni og þrótti. Ég hafði
að öllu leyti fjármagnað nám mitt í rafmagnstæknifræði
sjálfur og átti bókstaflega ekki neitt þegar við byrjuðum,
ekki íbúð eða neitt til að setja sem tryggingu fyrir fjár-
skuldbindingum," segir Rúnar.
Hann segir að viðskipti þeirra félaga við banka hafi
algerlega byggst á trausti, enda var ekki auðvelt að út-
skýra fyrir leikmönnum hvað þeir hyggðust gera. „Undir
slíkum kringumstæðum skiptir öllu að saga
þín í bankanum og annars staðar einkennist
af heiðarleika, að þú standir við það sem þú
segir. Ef ekki getur það komið í bakið á þér á
ýmsan hátt. Eg hef allta tíð staðið við mín
orð og ef tafir hafa verið fyrirsjáanlegar á
greiðslum hef ég skýrt málin með góðum
fyrirvara. Þannig myndast traust sem
hverju fyrirtæki er lífsnauðsynlegt.“
Rúnar fer ekki í grafgötur
með að það kostar mikla vinnu
og puð að koma upp fyrirtæki.
Hann segir Tæknival vera
byggt upp á gríðarlegri vinnu
margra aðila þar sem vinnudag-
urinn var yfirleitt langur og
strangur. Meðeigandi Rúnars
seldi reyndar sinn hlut 1985 og
varð Rúnar þá eini starfsmað-
urinn um sinn. í dag eru starfsmennirnir hins vegar 145
sem segir meira en mörg orð.
„Þetta var sosum ekki burðugur rekstur í fyrstu og
launin voru lengi mjög lág. Þá höfðu ekki allir skilning á því
að ég skyldi ekki taka meira fé út úr rekstrinum fyrir
sjálfan mig. En ég var staðráðinn í að halda áfram á þeirri
braut, sem ég hafði markað, og í dag sé ég að það var rétt.
Það er óhætt að segja að fyrstu 10 árin í rekstri fyrirtækis
fari í uppbyggingu. Menn geta ekki ætlast til verulegs
árangurs fyrr en eftir ákveðinn tíma og verða umfram allt
að sýna þrautseigju og úthald. Lykilinn að velgengni er
hæfileg blanda af dugnaði, útsjónarsemi og þrjósku."
Kaflaskipti urðu í rekstri Tæknivals þegar fyrirtækið
hóf sölu á Hyundai-tölvum sem síðan hefur verið aðal-
vörumerki fyrirtækisins, með um þriðjungs markaðshlut-
deild sl. þrjú ár. Árið 1990 var Tæknival sameinað Hugtaki
hf. sem hafði verið leiðandi í hugbúnaðarlausnum fyrir
sjávarútvegsfyrirtæki. Árið 1991 bættist við sala á Novell-
hugbúnaði og hefur fyrirtækið afar sterka markaðsstöðu
varðandi netlausnir fyrir viðskiptavini. Árið 1992 var Sam-
eind sameinuð Tæknivali. Sameind var leiðandi aðili í sölu
verslunarkerfa og varð Tæknival þá eitt af þeim stærstu í
upplýsingaiðnaði. Árið 1993 hóf fyrirtækið að selja
Hewlett Packard tölvur og tölvuvörur í samstarfi við Opin
kerfi hf. Tæknival opnaði BT-tölvur á síðasta ári en það
fyrirtæki sinnir heimilismarkaði og minni fyrirtækjum.
Tæknival varð opið hlutafélag þegar það eignaðist Sam-
eind árið 1993. í dag er hlutaféð 100 milljónir króna og í
eigu 97 aðila. Þar af eru um 20 starfsmenn. Á síðasta
aðalfundi var ákveðið að auka hlutaféð enn frekar nú í júní.
Rúnar leggur á það áherslu að hann hafi alla tíð staðið á
eigin fótum og eigin gerðum. Hann varð fyrir því að missa
föður sinn 7 ára gamall og það hafði veruleg áhrif á öll hans
viðhorf. Þá kynntist hann þeirri staðreynd að hann yrði að
treysta á sjálfan sig og engan annan og að hlutimir hefðust
legði hann nógu hart að sér. Rúnar undirstrikar að hann
hafi aldrei skuldbundið ættingja og vini fyrir sína hönd eða
fyrirtækisins. Hann segir grundvallar boðorð að blanda
ekki saman vinnu og fjölskyldu því þá séu menn komnir á
heldur vafasama braut.
„Ungt fólk, sem rekur fyrirtæki í dag,
verður að sýna þrautseigju og það má alls
ekki taka of mikið fé út úr fyrirtækinu of
fljótt. „Nýríkir" einstaklingar ná sjaldan
þeim árangri sem sóst var eftir í upphafi."
Rúnar segist mjög sáttur í dag. „Ég hef
minnkað vinnuna töluvert. Ég treysti fólk-
inu, sem vinnur með mér, og fæ það til að
axla ábyrgð. Það er mikilvægt
að vera ekki með puttana í öllu
og því sinni ég aðallega
ákvarðanatöku, stefnumótun
og hjálpa og leiðbeini. Það þarf
auðvitað að koma fram að
árangurinn er fyrst og fremst
áhugasömu og duglegu starfs-
fólki að þakka. Við rekum fyrir-
tækið sem sjálfstæðar deildir,
sem eru gerðar upp einu sinni í mánuði, og uppskera
starfsmenn í samræmi við árangurinn. Síðan eiga um 20
starfsmenn hlut í fyrirtækinu en slíkt er mjög jákvætt og
hvetur fólk til dáða. Ég legg líka áherslu á að stjórnendur
séu opinskáir við sitt starfsfólk og nái þannig fram sam-
hentum fjölskylduanda þar sem allir vinna saman að eflingu
fyrirtækisins.“
KRISTJÁN EINARSS0N
Árið 1982 stofnuðu hjónin Kristján Einarsson og Sigríð-
ur Bára Hermannsdóttir fyrirtækið Rekstrarvörur (RV).
Fyrirtækið var fyrst til húsa í 30 fermetra bflskúr að
Laugateigi 20 og störfuðu þau hjónin ein við fyrirtækið. Nú
„Það er óhætt að segja að fyrstu 10 árin í
stofnun og rekstri fyrirtækis fari í
uppbyggingu. Menn geta ekki ætlast til
verulegs árangurs fyrr en eftir ákveðinn tíma
og verða umfram allt að sýna þrautseigju og
úthald. Lykilinn að velgengni er hæfileg
blanda af dugnaði, útsjónarsemi og þrjósku. “
Rúnar Sigurðsson - Tæknivali
20