Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 78
Þeir, sem ekki fara hefðbundnar leiðir, geta jafnvel
lagt mynstrað Pergoparket á gólfið og takið eftir að
gaflinn á rúminu er með svipuðu mynstri.
mikilla vinsælda
rænum litum. Stærsti parturinn af gólfborðinu er síðan úr
plötu sem þróuð hefur verið á rannsóknarstofum Pers-
torp. Hún er úr trjásagi og lími sem pressað er saman við
mikinn þrýsting. Platan, eða borðið, verður mjög hart og
hentar því vel á slitfleti gólfsins.
Einungis er notað furu- eða grenisag eða sag úr öðrum
norrænum trjátegundum sem vaxa það ört að nýliðunin er
meiri en notkunin. Aðallega byggist framleiðslan á sagi,
sem kemur úr timburiðnaði í Svíþjóð, sem annars hefði
lent á ruslahaugunum eða verið brennt. Og þeir Pergo-
menn segja: „í stað þess að brenna sagið þegar í stað
höfum við fengið það „lánað“ í allnokkur ár og notum það í
gólfin okkar. Þegar þau hafa þjónað sínum tilgangi er
ekkert því til fyrirstöðu að endurvinna eða brenna þau eða
leyfa þeim að eyðast einhvers staðar á ruslahaugum fram-
tíðarinnar. Þau munu ekki menga umhverfið.“
HENTA VEL OFNÆMISSJÚKLINGUM
„Pergoparketið hefur þann stóra kost að það þarfnast
ekki viðhalds," heldur Margrét áfram. „Það þarf hvorki að
slípa það né lakka þegar fram líða stundir því útlitið breyt-
ist ekki. Parketið upplitast ekki þannig að þótt húsgögn
séu færð til sjást engar litabreytingar því sólin hefur ekki
breytt litnum umhverfis húsgögnin. Ekki þarf að bóna
Pergo, það þolir flest kemísk efni og það myndast ekki
rafmagn þegar gengið er eftir gólfinu. Þess vegna hentar
Pergo vel á skrifstofugólf eða í tölvuherbergi ekki síður en
inni á heimilinu. Formaldehyðið í gólfborðunum er innan
við leyfileg mörk. Af því leiðir að fólk fær ekki ofnæmi eins
og það getur fengið af efniviði sem innheldur mikið af
efninu. Læknar hafa jafnvel mælt með notkun Pergogólf-
efnis þar sem astma- og ofnæmissjúklingar eru annars
vegar. Pergoparketið þolir sígarettuglóð og að lokum má
árétta að það sameinast auðveldlega jarðvegi eða nýtist
vel til orkuframleiðslu sé það brennt þegar notkunartími
þess er liðinn, hvenær sem það svo sem kann að verða.“
Pergoparket er hægt að leggja á öll herbergi heimilisins
en rétt er þó að hafa það ekki á baðherbergisgólfið þar sem
raki getur orðið mikill. Þegar parketið er lagt er það gert á
sama hátt og annað fljótandi parket og því þarf að gera ráð
fyrir nokkurri þenslu svo haft er 4-5 mm bil milli borðenda
og veggjar. Sérstakt hljóðeinangrandi undirlag er lagt und-
ir Pergoparket og verður til þess að hávaði fer úr 24 niður í
18 desibel. Þetta undirlag getur lagað 3-4 mm misfellur á
gólfi og sparar fólki iðulega að leggja flot í ójafnt gólf. Pergo
kemur í stærðinni 120x20 sm og ekki bara í viðarlitunum,
sem eru yfir tuttugu talsins, heldur einnig með marmara-
og granítlit og meira að segja með blómamynstri. Að sögn
Margrétar er mest selt af eikar- og beykilit en dökku
viðarlitimir eru einnig að verða mjög vinsælir.
Loks má geta þess að Pergo er selt með 10 ára ábyrgð
að því tilskildu að parketið hafi verið lagt samkvæmt leið-
beiningum og sérstakt Pergolím notað til þess að h'ma
saman gólfborðin. Rétt er að taka fram að mjög auðvelt er
að þvo lím af, sem kann að hafa farið á gólfið við lagningu,
og sama gildir reyndar líka um hvers konar bletti, enda
þolir parketið flest kemísk efni eins og þegar hefur komið
fram.
78