Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 63
ENHVAÐ ER ÍMÚR?
ÍMÚR-múrkerfi er sementsbundin útveggjaklæðning
sem notuð hefur verið við íslenskar aðstæður í 10 ár. Eitt
af markmiðum kerfisins er að halda einkennandi útliti
þeirra byggingaraðferða, sem notaðar hafa verið hérlend-
is, en kerfið er hægt að fá sléttpússað, með hraunáferð,
setja á það perlumúr, eða með steiningu. Þá er steinsalli úr
marmara, kvartsi, basalti og fleiri steintegundum settur í
kerfið í mismunandi litum. Ámi Kjartansson arkitekt og
Sveinn Sighvatsson, byggingameistari á Höfn, mótuðu
þetta múrkerfi upphaflega árið 1986 í samvinnu við Björn
Marteinsson, verkfræðing og arkitekt hjá RB. Kerfið er
uppbyggt sem sementsbundin, trefja- og netstyrkt múr-
skel utan á harðpressaðri steinull sem fest er með múr-
töppum inn í burðarkerfi hússins. Komið hefur í Ijós við
samanburð á þessu kerfi og öðrum að einungis um 10% af
kostnaði við ákveðinn vegg er af erlendum toga spunninn
þegar ÍMÚR er annars vegar. Samanburður sem RB gerði
á ímúmum innbyrðis, slétthúðuðum, hraunuðum og stein-
uðum, sýndi að hraunhúðun var 10% dýrari en slétthúðun
og steinun 25% dýrari.
„Aukinn áhugi er á því, sérstaklega meðal arkitekta og
opinberra aðila, að benda mönnum á að velja klæðningar út
Gamalt hús við Grettisgötu sem klætt hefur verið í
slétta IMURkápu. Það heldur sínu upprunalega útliti
vel.
frá útliti og halda því þannig en eyðileggja ekki heildarsvip
heilu hverfanna ef til þess kemur að klæða þurfi húsin utan
vegna steypuskemmda eða annars viðhalds," segir Aðal-
steinn.
Nú hefur ÍMÚR verið notaður á rúmlega 105 þúsund
fermetra veggflatar íslenskra húsa og að sögn Aðalsteins
hafa fjölmargar úttektir og reynsla staðfest að kerfið er
veðurþolið og sterkt og hentar mjög vel íslenskum að-
stæðum og veðurfari.
StáMæðningar á þök og veggi.
r
Okeypis kostnaðaráætlanir.
63