Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 22
FORSIÐUEFNI
JOHANN OLI
GUÐMUNDSSON
„Það byrjaði á því að ég hafði fyrir fjögurra manna
fjölskyldu að sjá og var í námi. Ég vann við ýmislegt með
náminu, eins og ræstingar á kvöldin og vaktavinnu á nótt-
unni sem öryggisvörður sem fór reglulega í
fyrirtækin. Ég samdi við hvert fyrirtæki
fyrir sig. Ég neita því ekki að stjómendum
fyrirtækja fannst þetta svolítið framandi
þjónusta og nokkrir voru svo undrandi
þegar ég bar upp erindið að þeir litu nánast á
mig eins og ég væri ffá öðrum hnetti, grænn
með tvö hom út úr höfðinu.. .En yfirleitt var
þessari hugmynd minni vel tekið á endan-
um. Menn sáu að það var þörf
á þessari þjónustu þótt það
væri fjarri að þeir hefðu gert
sér skýra grein fyrir því áður.
Á meðal fyrstu fyrirtækja,
sem ég samdi við, vom Gísli
J. Johnsen, íspan og Skeifan.
Ég var svo lánsamur að Guð-
jón Guðmundsson, þáverandi
framkvæmdastjóri hjá Gísla J.
Johnsen, bauð mér afdrep í fyrirtæki hans á nóttunni.
Þaðan var vaktin tekin. Þetta vatt hratt upp á sig og smátt
og smátt fór ég að seilast út fyrir Kópavoginn. Það varð
náttúrlega ekkert af því að ég færi í lögfræðina þannig að
það má segja að ég sé enn í sumarvinnunni frá 1979.“
Sá er hér mælir er Jóhann Óli Guðmundsson, forstjóri
Securitas, í viðtali við Fijálsa verslun fyrir fjórum ámm.
Þegar Jóhann Óli ákvað að stofna lítið fyrirtæki um örygg-
isgæslu óraði hann ekki fyrir að 17 árum síðar yrði hann
með um 500 manns í vinnu en ekkert laganám.
Jóhann Óli átti gamla Lödu þegar hann byijaði með
öryggisgæsluna og leigði tveggja herbergja íbúð í Stóra-
gerði. Við stofnun fyrirtækisins ákvað hann að selja Löd-
una. Helmingur andvirðisins fór í stofnkostnað við fyrir-
tækið og hinn helmingurinn í ódýrari bíl. Heima var skonsa
inn af forstofunni ætluð frystikistu. Þar kom hann fyrir litlu
borði og stól og fyrsta skrifstofa Securitas var orðin að
vemleika.
Velgengni fyrirtækisins segist Jóhann Óli geta þakkað
góðum viðtökum og því sem öllum fyrirtækjum er nauð-
synlegt: Skýrri markmiðasetningu og óbilandi metnaði til
að fylgja áætlunum eftir að settu marki. Framúrskarandi
starfsfólki þakkar Jóhann Óli þó öðm fremur árangur fyrir-
tækisins. Það hafi með ósérhlífnum hætti borið kyndil
metnaðarins áfram og gerir enn í dag. „Það er liðsandinn
og liðsheildin sem skipta máli, alveg eins og í íþróttum,“
segir hann.
Jóhann Óli segir ljóst að miklu sé fómað til að ná árangri
og það hafist ekki með hefðbundnum vinnudegi eða hefð-
bundnu vinnuálagi. „Fyrirtækið hefur verið lánsamt og
uppfyUir allar gæðakröfur sem gerðar eru til virtustu ör-
yggisfyrirtækja erlendis. Það hefur verið vandað til upp-
byggingar Securitas. Það er skondið til þess að hugsa að
flestum fannst þessi hugmynd svo ófín og jafnvel vitlaus að
ekki hvarflaði að þeim að hasla sér vöO á þessum vett-
vangi. í öryggismálum fá menn það sem þeir borga fyrir,
svo einfalt er nú það. Óraunhæf undirboð leiða bara til
skerts öryggis og verða því á endanum fyrst og fremst
kaupendunum til skaða. Þetta vita orðið flestir og virða
þau lögmál sem þessari starfsgrein til-
heyra.“
Hann gerir tímanýtingu manna að sér-
stöku umtalsefni auk smæðarinnar og ná-
lægðarinnar sem menn búa við í íslensku
samfélagi. Þar kemur að þætti í fari margra
íslendinga sem honum fmnst of fyrirferðar-
mikill, öfundinni. Hann segir öfundina ekki
aðeins tímafreka heldur mjög niðurdrepandi.
„Það er merkilegt ef
grannt er skoðað að þeir sem
á endanum ná að byggja upp
traustan rekstur utan um
hugmyndir sínar virðast ekki
haldnir öfund. Þeir einbeita
sér að uppbyggingu í stað nið-
urrifs og geta samglaðst öðr-
um sem eru að gera það gott.
Þeir læra af árangri annarra. “
ÁRNIZÓPHANÍASSON
Það vakti nokkra athygli þegar Miðlun ehf. seldi sænska
sfmafyrirtækinu Telia viðskiptahugmyndina að rekstri
Gulu línunar sem veitir almenningi upplýsingar um vörur
og þjónustu í gegnum síma. Reksturinn hófst 20. maí
síðastliðinn og var forstjóri Miðlunar, Ámi Zóphamasson,
staddur í Svíþjóð af því tilefni. Ámi telur umfang þessa
samnings við Telia nema á bilinu 50-60 milljónum króna sé
litið til næstu þriggja ára.
Þessi áfangi í uppbyggingu Miðlunar er árangur af miklu
þróunarstarfi innan fyrirtækisins sem aftur á rætur að
rekja til úrklippustarfsemi sem hófst á eldhúsborðinu
heima hjá Áma fyrir um 15 ámm.
Ámi er yngstur viðmælenda okkar, fæddur 1959. Eftir
að hafa lokið verslunarprófi og síðan stúdentsprófi utan-
skóla fór hann í sagnfræði í Háskólanum. Þar nam hann til
1984 en var þá kominn á kaf í úrklippumar og lauk ekki
prófi. Ámi hafði reyndar stofnað fyrirtækið Samskipti
1978 en seldi sinn hlut í því fyrirtæki nokkmm ámm síðar.
En úrklippustarfsemin hlóð utan á sig á eldhúsborðinu og
varð síðan svo umfangsmikil að Árni ákvað að stofna um
hana fyrirtæki, Miðlun.
Starfsemi Miðlunar greinist í þrjú svið. Elsti hluti fyrir-
tækisins er Fjölmiðlavaktin svonefnda, sem hefur það
hlutverk að fylgjast með fjölmiðlum landsins og vinna úr
þeim efni sem miðlað er til viðskiptavina í samræmi við
„Hugarfarið skiptir miklu máli. Þeir sem á
endanum ná árangri einbeita sér að
uppbyggingu í stað niðurrifs - og þeir geta
samglaðst öðrum. Þeir læra af árangri annarra. “
- Jóhann Óli Guðmundsson, Securitas
22