Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 105
trá Whir'P00' er me^
r5 níiu „ppl.vo.tavéiarmuar í-a
miúkum línum.
Stórir hnífar í sérstakri grind.
Glæsilegur örbylgjuofn.
iklar breytingar
hafa orðið á heimil-
istækjalínunni frá
Wirlpool frá því fyrirtækið
keypti hina svokölluðu
„hvítu línu“ af Philips. Út-
litsbreytingar eru verulegar
og mjúkar línur áberandi í
ytra útUti tækjanna. Þá hafa
ýmsar nýjungar skotið upp
kollinum og þar á meðal í nýjustu uppþvottavélum Wirlpool
sem komnar eru á markað hér hjá Heimilistækjum.
SPARAR VATN OG ORKU
Veigar Óskarsson verslunarstjóri bendir okkur á að
nýjasta uppþvottavélin geti bæði sparað vatn og orku eftir
því hvemig hún er notuð og þar við bætist að vélin er
sérlega hljóðlát því hún mælist aðeins tæp 40 desibel.
Framleiðendurnir segja að nú sé ekkert því til fyrirstöðu
lengur að þvo upp seint að kvöldi eða snemma morguns
þegar flestir á heimilinu eru enn í fasta svefni.
Uppþvottavatnið kemur inn í vélina á þremur stöðum -
aftan við grindumar - og dreifist vel um hana alla. Hægt er
að þvo upp í aðeins annarri
grindinni í einu, þeirri efri
eða þeirri neðri, en á þann
hátt sparast vatn og orka.
Vatnsnotkunin er 37% minni
en ella og orkunotkunin 29%
minni en við venjulegan
þvott. Árangurinn er þó
sagður jafn góður. Hitaeli-
mentið í þessari nýju vél er
innbyggt í botn hennar og því ekki hætta á að plastílát, sem
sett eru fyrir vangá í neðri grindina, geti skemmst. Allar
grindur í neðri grindinni eru færanlegar og því til dæmis
hægt að raða diskum þversum og langsum eftir því sem
þörf krefur. í efri grind er færanleg grind fyrir langa hluti,
brauðhnífa eða álíka verkfæri. Loks er hægt að tímastilla
uppþvottinn svo hann heíjist eftir 3, 6 eða 9 tíma. Vélin notar
um 20 lítra af vatni og hitastillingar em 50, 65 og 70 stig.
Önnur nýjung frá Wirlpool er sambyggð vifta og ör-
bylgjuofn. Þar með rætist draumur þeima, sem hafa lítið
pláss, um að koma ofninum fyrir yfir eldavélinni. Þar er
hann í hæfilegri hæð og auðvelt að fylgjast með því sem í
honum er.
WIRLP00L
Wirlpool eru komnar á markað hér
á landi kjá Heimilistækjum
105