Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 114
Úr Mávanesinu. Hér er horft inn í stofuna. Borðstofan er til hægri en hún er þrepi ofar en stofan. Á gólfum er parket
og sums staðar teppi.
EFTIRSÓTTUSTU HVERFIN?
„Það er alveg Ijóst að eftirsóttust eru hús sem eru miðsvæðis.
Þau eru dýrari og seljast öðrum fremur betur. Einnig hús, sem liggja nærri
sjó og á sjávarlóðum, og svo auðvitað hús af heppilegum stærðum.“
er að koma út á markaðinn í dag. Fólk
nýtti sér tækifærið til að festa sér
íbúð, eða fór að byggja, strax um og
upp úr tvítugu. Nú finnst mér muna
að minnsta kosti fimm eða allt upp í 8
árum á því hvað fólk er seinna á ferð-
inni. Margir eru farnir að nálgast
þrítugt. Reyndar heyrir maður sögur
frá Þýskalandi um að meðalaldur
fyrstu kaupenda sé allt að 40 ár. En
þar eru valkostir auðvitað fleiri á hús-
næðismarkaði."
-Hefur sölutækni breyst mikið hjá
fasteignasölum?
-Já, heilmikið, til dæmis með þess-
um „opnu húsum“, sem við köllum
svo, þegar seljendur taka á móti
áhugasömum kaupendum sem vilja
skoða eignirnar. Oft hefur þetta leitt
til sölu. Svo er meira farið að birta
myndir af húsum en áður og það lit-
myndir. Þær vekja athygli og gleðja
augað og fasteignasíðumar verða
mun skemmtilegri og læsilegri fyrir
vikið. Ekki eru heldur sömu áhrif af
svart/hvítri mynd og litmynd og fólk
áttar sig kannski betur á eignunum
með þessu móti.“
ÓTRÚLEGA FÁIR SKOÐA
-Stundum er því haldið fram að fólk
fari bara að kíkja af einskærri for-
vitni, er það rétt?
„Nei. Ég verð að segja alveg eins
og er að verulega hefur dregið úr því.
Til eru tölur um hve margir af þeim,
semfáeignir uppgefnar, skoða. Fram
kemur að 10-15% skoða þegar sala er
lífleg en allt niður í aðeins 5% þegar
minna líf er í sölunni. Þetta hefði þótt
mjög lágt hlutfall hér á árum áður. Þá
skoðaði fólk miklu fremur, eins og þú
orðar það - af einskærri forvitni. Nú
finnst mér ríkja meiri ákveðni og ekki
nema eðlilegt að fólk fari og skoði til
þess að átta sig.“
-Og svona að lokum, verður fólk að
trappa sig niður og margskipta til
þess að losna við stóru húsin og
kemur enginn lengur og hreinlega
kaupir stórt hús án þess að láta aðra
eign upp í?
„Minna er um það en áður að menn
komi og kaupi beint þegar um stærri
eignir er að ræða. Færst hefur í vöxt
að höfð séu makaskipti á eignum. Þau
hafa einkennt markaðinn mjög á síð-
ustu árum og sérstaklega frá 1991
þegar hámarkslánin lækkuðu. Eig-
endur stærri eigna hafa orðið að taka
aðrar upp í sem hefur oft ekkert verið
verra. Það hefur liðkað fyrir viðskipt-
unum og í fleiri tilfellum heldur en hitt
hafa menn náð settu marki með þess-
um hætti.“
-En er það ekki slæmt fyrir seljend-
urna, þótt það sé gott fyrir ykkur
fasteignasalana, að tapa þannig
stórupphæðum í sölulaun á síend-
urteknum eignaskiptum?
„Menn verða bara að sætta sig við
að markaðurinn sé með þessum
hætti. Öðruvísi gerist þetta ekki,“
segir Jón Guðmundsson, formaður
Félags fasteignasala og sölustjóri hjá
F asteignamarkaðnum.
114