Frjáls verslun - 01.04.1996, Blaðsíða 41
Gunnar er annálaður listunnandi og stofnaði Listasjóð Pennans fyrir nokkrum árum. Listastjóðurinn er tileinkaður
minningu foreldra hans, þeirra Margrétar Kristjánsdóttur og Baldvins P. Dungal.
stunda þau töluvert gönguskíði í ná-
grenni Dallands þar sem eru ágæt
skíðalönd þegar snjóar og hægt að
skrefa um víðlendar heiðar og drög.
Um þessar mundir hefur Gunnar
mikinn áhuga á líkamsrækt og hefur
árum saman stundað eróbikk eða þol-
fimi af miklum móð í Stúdíói Ágústu
og Hrafns í Skeifunni.
LISTIN OG ATVINNULÍFIÐ
Gunnar er listunnandi og hefur
alltaf þekkt listamenn og keypt verk
ungra listamanna. Hann er alinn upp
við þetta því þegar hann var að alast
upp í Pennanum komu þangað margir
listamenn og keyptu liti, pappír,
pensla og hvað það nú er sem nota
þarf við listsköpun. Það kom fyrir að
þeir lentu í greiðsluþröng og þá var
Baldvin, faðir Gunnars, jafnan til-
búinn að ræða greiðslu í listaverkum.
Þessu merki hefur Gunnar haldið á
lofti með sóma en fært fyrirkomulagið
til nútímans með tvennum hætti.
Annars vegar er Listasjóður Pennans
sem styrkir tvo listamenn árlega.
Þennan sjóð stofnaði Gunnar þegar
Margrét, móðir hans, lést og er hann
tileinkaður minningu hennar og
Baldvins.
Fyrir tveimur árum fékk svo Gunn-
ar eina af sínum hugmyndum og fékk
Óskar Magnússon, Jóhann Óla
Guðmundsson, Sigurð Gísla Pálma-
son og Gunnar Kvaran í lið með sér til
að stofna Listasjóð atvinnulífsins. Um
30 fyrirtæki eru aðilar að listasjóðn-
um og skuldbindur sjóðurinn sig til
þess að kaupa eitt listaverk í mánuði.
Sjóðurinn heldur jafnframt listkynn-
ingar fyrir aðildarfélaga til þess að
auka þekkingu þeirra á list og farið er í
skoðunarferðir og heimsóknir til lista-
manna. Gunnar og Þórdís eiga tölu-
vert af listaverkum sjálf eftir marga
höfunda.
Auk Hjörleifs Kvaran má, fyrir ut-
an þá sem þegar eru neóidir, telja til
kunningjahóps Gunnars þá, Gunnar
Stein Pálsson auglýsingamann, Valdi-
mar Harðarson arkitekt, Hannes
Guðmundsson Securitasforstjóra,
Atla Guðmundsson tamningamann,
Jón Þórisson leikmyndateiknara og
Kristinn E. Hrafnsson myndhöggv-
ara.
41