Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 24

Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 24
FORSÍÐUEFNI farið í aðgerðir sem eru mjög kostnaðarsamar til lengri tíma, samanber útflutning Gulu línunnar. „Það verkefni hefur tekið 4-5 ár og kostað mikla peninga. En þá skiptir máli að snúa ekki baki við hugmyndinni við fyrsta mótbyr heldur halda ótrauður áfram.“ Ami segir áríðandi að velja og hafna þegar ná eigi árangri. „Menn standa alltaf frammi fyrir því að fóma einhverjum hlutum fyrir velgengni í viðskiptum. Sumir hafi því miður fórnað fjölskyldunni en ég lifi farsælu fjölskyldu- lffi. Fjölskyldan hefur verið mjög umburðarlynd og sýnt þann stuðning sem er nauðsynlegur meðan á uppbyggingu fyrirtækis stendur. Ég er mjög sáttur þegar á heildina er litið þótt vissulega hefði ég viljað gera ýmislegt öðruvísi. Það var lán að ég skyldi byrja á sínum tíma því það er erfiðara að byrja með tvær hendur tómar í dag en fyrir 13 árum.“ BIRGIR ÞORARINSSON Ferill Birgis Þórarinssonar er ólíkur ferli hinna viðmæl- enda okkar að því leyti að hann hafði verulega reynslu af þeirri starfsemi, sem hann yfirtók, þegar hann keypti Egil Ámason hf. fyrir átta árum. Þá keypti hann starfandi fyrirtæki þó svo reksturinn hafi verið í lág- marki. í dag er Egill Ámason stöndugt fyrir- tæki og meðal leiðandi fyrirtækja í sölu parkets og flísa. Birgir hefur síðan bætt um betur en hann keypti gólfefnabúðina Teppa- land 1994 og rekur hana ásamt Agli Áma- syni. Þar með ræður Birgir, nú 42 ára gamall, yfir stórum hluta af gólfefnamarkað- num á íslandi í dag. „í stuttu máli byggist þetta að talsverðu leyti á því, sem manni er gefið í vöggugjöf, en auðvitað skiptir einnig máli hversu agaður maður er og hvar áhugi manns liggur,“ segir Birgir. Hann hóf ungur að selja blöð og vann síðan á eyrinni og í fyrstihúsum með skóla. Hann átti alltaf peninga og ólíkt mörgum öðrum strákum gekk hann aldrei í vasann hjá pabba eftir peningum. Lögðu foreldramir áherslu á að hann sæi fyrir sér sjálfur. „Það var alltaf lögð rík áhersla á að gera upp sínar skuldir og skulda engum neitt. Það kann að vera tilviljun- um háð hvað menn fara að gera í lffinu en grunnurinn er lagður í uppeldinu. Ég var langt frá því að vera pabba- drengur þótt faðir minn hafi vissulega verið mér innan- handar með góð ráð og leiðbeiningar. Ég fékk ekkert upp í hendumar og þurfti að stóla á sjálfan mig. Því finnst mér stundum erfitt að horfa upp á hve mikla vasapeninga sumir krakkar fá í dag og hvað þeir virðast lítið þurfa að sjá fyrir sér sjálfir. “ Birgir segist eiga Víði Finnbogasyni í Innréttingabúð- inni og síðar Teppalandi mikið að þakka, þar hafi hann lært allt um gólfefnabransann. Hann vann í búðinni hjá Víði á sumrin frá 15 ára aldri og fékk þar reglulega fyrirlestur um gildi snyrtimennsku og þess að standa í skilum. Og þeim boðum var áfram komið til Birgis þegar hann dvaldi í Englandi um tíma og vann hjá byggingaverktaka og aftur síðar þegar hann nam verslun og viðskipti í London um fjögurra ára skeið. „Ég byijaði svo að starfa hjá Víði þegar ég kom heim frá námi 1978. Ég var sölustjóri en framkvæmdastjóri var þá Jón H. Karlsson. Við unnum saman til 1986 og var það mikill og skemmtilegur uppgangstími. Það var okkur mik- ilvægt að fá tiltölulega frjálsar hendur, enda fullir af eld- móði. Síðan gerist það að ég skynja aukinn áhuga á parketi og spáði að það yrði aðalgólfefnið. Teppaland hafði þá ekki þann áhuga á parketi sem ég hafði. Því sló ég til þegar Egill Ámason bauðst til kaups 1986.“ Þá var einn starfsmaður hjá Agli Árnasyni, sem staðsett var í Skeifunni 3, nokkrar pallettur af gólfefnum á lager og reksturinn í algeru lágmarki. En tvö væn gólfefnaumboð fylgdu í kaupunum: Junckers og Káhrs. „Þetta var feiknamikil og erfið ákvörðun en ég hafði gífurlegan stuðning í mínum besta vini og viðskiptafélaga sem er konan mín, Dóra Sigurðardóttir. Hún, auk föður míns og tengdaföður, veitti mér þann stuðning sem til þurfti og var nauðsynlegur. Hún hefur haft mikil áhrif á líf mitt, sýndi mikið þor og var ekki síður tilbúin að taka áhættuna. Undir svona kringumstæðum er nauðsynlegt að hafa einhvern sem stendur traustur við bak- ið á manni því það var virkilega erfitt að fara til útlanda, rúmlega þrítugur, og semja við birgjana þar sem fyrirtækið hafði nánast ekki verið í rekstri. En það gekk upp,“ segir Birgir. „Það verður aldrei sagt nógu oft en það er þrotlaus vinna að koma upp fyrirtæki þar sem menn vinna oft meira en 15 tíma á sólarhring og eru alltaf með hugann við rekstur- inn. Maður leggur allt í söl- urnar. Ég hafði reyndar ákveðið forskot þar sem ég þekkti gólfefnamarkaðinn mjög vel en svona rekstur bygg- ir alltaf á frumgerðinni, vináttu, stuðningi hinna nánustu - og þá er ég ekki að tala um fjárhagsstuðning - sjálfstæði og þori. Það skiptir öllu máli að þora og vera framtakssamur. “ Þegar efni hafði verið safnað í þessa grein varð ljóst að sögur þessara manna voru mjög keimlíkar þótt þeir fáist við ólíka hluti. Komu ákveðnir hlutir upp aftur og aftur og gengu eins og rauður þráður í gegnum efnið: Þolinmæði, þrautseigja, dugnaður og mikil vinna, agi, útsjónarsemi og heiðarleiki í öllum samskiptum voru meðal þess sem allir lögðu áherslu á sem lykilatriði á bak við velgengni. Þá kom einnig fram að menn gætu haft alla þessa þætti í hávegum þótt þeir sýndu hörku í viðskiptum og væru fylgnir sér. „Ég fékk ekkert upp í hendurnar og þurfti að stóla á sjálfan mig. Því finnst mér stundum erfitt að horfa upp á hve mikla vasapeninga sumir krakkar fá í dag og hvað þeir virðast lítið þurfa að sjá fyrir sér sjálfir. “ Birgir Þórarinsson - Agli Árnasyni 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.